Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. janúar 2026 11:10 Þórir Baldursson með jamaísku súperstjörnunni Grace Jones í stúdíóinu á diskótímabilinu. Heimildarmyndin Maðurinn sem elskar tónlist fjallar um ævi og störf tónlistarmannsins Þóris Baldurssonar og verður frumsýnd í Bíó Paradís í dag. Á sjötíu ára tónlistarferli hefur Þórir unnið með mörgum þekktustu tónlistarmönnum Íslands en líka erlendum stórstjörnum á borð við Elton John, ABBA, Rolling Stones, Donnu Summer og Grace Jones.
Fylgst er með Þóri frá því hann var barn í Keflavík þar sem hann fylgdi föður sínum tíu ára gamall á dansleiki og lék undir á píanó. Áhorfendur sjá þegar Þórir gekk í sína fyrstu hljómsveit tólf ára og varð virkur í tónlistarsenunni. Í byrjun áttunda áratugarins fór Þórir í mánaðarlanga vinnuferð til Finnlands og endaði á að starfa erlendis næstu árin, á Norðurlöndunum, í Sviss, Þýskalandi og loks í Bandaríkjunum. Stikla myndarinnar er frumsýnd á Vísi og má sjá hana hér að neðan: Farið er á kunnuglega staði þar sem hljóð og stíll diskótónlistarinnar varð til fyrir tæpum fimmtíu árum og staldrað við hjá gömlum vinum og samstarfsmönnum. Sýnd verða ný og gömul viðtöl við Þóri og starfsfélaga, vini hans hérlendis og erlendis auk fjölda annara atvika allt frá 1957 til dagsins í dag. Plakatið fyrir maðurinn sem elskar tónlist. Meðal þeirra sem að koma fram í myndinni og tengjast Þóri á einn eða annan hátt eru Savanna tríóið, Dátar, Hljómar, Heiðursmenn, Þrjú á palli, Lee Hazlewood, María Baldursdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Jóhann Helgason, ABBA, Boney M, Rolling Stones, Georgio Moroder, Donna Summer, Twiggy, Grace Jones, Elton John, Geir Ólafsson, Kristján Jóhannsson, Sigurður Flosason og margir fleiri. Þórir hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2011 og á nýársdag árið 2013 var hann sæmdur riddarakrossi fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Þórir er 81 ára gamall í dag og er að hluta til sestur í helgan stein. Hann gerir við gömul Hammondorgel í frítíma sínum og spilar stundum með ýmsum hljómsveitum, oftast jazz. Leikstjóri og handritshöfundur Mannsins sem elskar tónlist er Jóhann Sigmarsson og er hún framleidd af Október Productions, Fjörutíu þúsund sjötíu og fjórum kílómetrum í samvinnu við Ægi Invest. Klippari myndarinnar er Einar Snorri Einarsson, annar helmingur Snorri Bros, sem sá einnig um tónablöndun hennar. Fahad Falur Jabali fór með framleiðslustjórn myndarinnar. Heimildarmyndin hlaut styrk úr Kvikmyndamiðstöð Íslands og styrktu sveitarfélögin Reykjanesbær, Kópavogsbær og Dalvíkurbyggð framgang verkefnisins.
Tónlist Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira