Viðskipti innlent

Bein út­sending: Menntadagur at­vinnu­lífsins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Viðburðurinn fer fram á Hótel Nordica.
Viðburðurinn fer fram á Hótel Nordica. Vísir/Vilhelm

Menntadagur atvinnulífsins verður haldinn í dag á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13:30. Sýnt er frá deginum í beinni útsendingu á Vísi en útsending hefst klukkan 13:10. 

Menntadagur atvinnulífsins er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar, að því er segir í tilkynningu þar sem segir að dagskráin sé fjölbreytt og áhugaverð. Hún stendur yfir til klukkan 16:00.


Sérstaklega er sjónum beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla. Þátttakendur koma víða að úr atvinnulífi, menntakerfi, stjórnmálum og stjórnsýslu.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um viðamikla könnun sem lögð hefur verið fyrir forsvarsfólk fyrirtækja innan vébanda SA.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjvíkurborgar sitja fyrir svörum í pallborði hjá Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI.

Helga Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Arion banka, Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Sesselja Ómarsdóttir, forstjóri Genis, ræða málin í pallborði hjá Sigtryggi Magnasyni, forstöðumanni miðlunarsviðs SA.

Kastljósinu verður beint að samstarfi Kjarnafæði Norðlenska og VMA, starfinu í Elliðaárstöð og Bláa lóninu. Þá fáum við innlegg frá Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Sigurði Svavari Indriðasyni, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni.

Síðast en ekki síst verður tilkynnt um menntafyrirtæki ársins og menntasprota.

Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×