Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Atli Ísleifsson skrifar 11. febrúar 2026 12:15 Icelandair á í samstarfi við norska flugfélagið Widerøe. Kristófer Þór Hjartarson Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til Tromsø í Norður-Noregi en flogið verður tvisvar í viku til borgarinnar frá 23. október 2026.
Í tilkynningu segir að einnig verði flugtímabil til Bergen framlengt og verði nú flogið þangað allt árið. „Með viðbótinni verður flugáætlunin á milli Íslands og Noregs sú umfangsmesta í sögu Icelandair. Tromsø er áfangastaður fyrir náttúru- og norðurljósaunnendur og hefur notið vaxandi vinsælda í Norður-Ameríku. Þessi nýja flugleið Icelandair mun efla tengingar bæði frá Norður-Ameríku til Noregs og Noregi til Norður-Ameríku. Eitt af markmiðunum með flugleiðinni er að markaðssetja viðdvöl á Íslandi fyrir ferðamönnum vestanhafs og bjóða þannig tvo áfangastaði fyrir einn, Ísland og Norður-Noreg. Icelandair á í samstarfi við norska flugfélagið Widerøe, en í gegnum Bergen og Tromsø bjóða flugfélögin tvö upp á tengingar við alla helstu flugvelli í Noregi,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að flug til Tromsø opni marga spennandi möguleika. „Nú er auðveldara fyrir Íslendinga sem búa í Norður-Noregi og Norðmenn sem búa á Íslandi að komast til heimahaganna, auk þess sem við opnum frábærar tengingar á milli Norður-Ameríku og Norður-Noregs. Íbúar í Norður-Noregi eiga þannig auðveldara með að komast til fjölda áfangastaða okkar í Norður-Ameríku og sömuleiðis opnast þægilegar tengingar úr vestri um Íslands til norðurhluta Noregs,“ segir Bogi Nils.
Icelandair Fréttir af flugi Ferðalög Noregur Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira