Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. febrúar 2026 23:33 Max Verstappen hefur ekki skemmt sér vel í fyrstu prufukeyrslunum. Getty/Eric Alonso Eftir fyrstu prufukeyrslur á mikið breyttum Formúlu 1 bíl hefur fjórfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen látið óánægju sína í ljós. Hann segir nýja Red Bull bílinn ekki skemmtilegan og allt of ólíkan fyrri árgerðum.
Eftir fyrstu prufukeyrslur á mikið breyttum Formúlu 1 bíl hefur fjórfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen látið óánægju sína í ljós. Hann segir nýja Red Bull bílinn ekki skemmtilegan og allt of ólíkan fyrri árgerðum. Formúla 1 hefur breytt reglugerðinni fyrir bílasmiði mjög mikið milli tímabila. Nýju bílarnir verða minni, mjórri, léttari, meira knúnir af rafmagni og hið hefðbundna DRS kerfi heyrir nú sögunni til. Bílstjórarnir tóku prufukeyrslu í Barcelona undir lok síðasta mánaðar og eru nú mættir til Barein í aðra prufukeyrslu. Max Verstappen tjáði sig eftir æfingu: „Að keyra þá er ekki mjög skemmtilegt, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Þetta er kannski ekki fallegt af mér að segja. En sem ökumaður finn ég ekki þessa Formúlu 1 tilfinningu, þetta er meira eins og Formúlu E bíll á sterum.“ Þetta er harðasta gagnrýnin sem þessi nýja kynslóð af Formúlu 1 bílum hefur fengið en í gær sagði sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton að nýju reglurnar væru „fáránlega flóknar“ og „enginn áhorfandi á eftir að skilja þær.“ Ríkjandi heimsmeistarinn Lando Norris hefur ekki tjáð sig um málið en yfirburðir McLaren bílsins á síðasta tímabili áttu mikinn þátt í titlinum. Nýtt tímabil í Formúlu 1 hefst í Ástralíu þann 8. mars næstkomandi.
Akstursíþróttir Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport Sara tekur ekki þátt í Open og missir því af heimsleikunum Sport „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti Fá bætur eftir að hafa villst vegna forystubílsins Sport Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Enski boltinn Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Handbolti Fleiri fréttir Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira