Nova kaupir Ofar Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2026 08:54 Sylvía Kristín Ólafsdóttir er forstjóri Nova. Vísir/Vilhelm Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf.
Frá þessu segir í tilkynningu til Kauphallar, en nafni Origo lausna var breytt í Ofar árið 2024. Fram kemur að kaupin séu liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrki verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. „Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að styðja við fyrirtæki og stofnanir með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval hljóð- og myndlausna, prentlausna, heilbrigðislausna ásamt lausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði, innviði, gagnaver og fleira. Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 ma.kr., EBITDA félagins tæplega 620 m.kr. og rekstrarhagnaður um 360 m.kr. Heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna nemur 4.400 m.kr., en auk þess nema leiguskuldbindingar um 510 m.kr. í árslok 2025. Endanlegt kaupverð ræðst af nettó stöðu veltufjármuna og hreinum vaxtaberandi skuldum á uppgjörsdegi. Kaupin verða fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að Nova hf. og Ofar verði rekin í sitthvoru lagi, hvort undir sínu vörumerki. „Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 m.kr. á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 m.kr., en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 m.kr. á ári. Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova, að Ofar sé félag sem hafi byggt upp öfluga stöðu á markaði með fagmennsku og metnaði. „Félagið, líkt og Nova, vinnur markvisst með tækninýjungar og hefur það að leiðarljósi að viðskiptavinir séu ávallt með bestu lausnir fyrir sína starfsemi. Ég kynntist Ofar vel þegar ég starfaði hjá Origo og hef fylgst með þróun félagsins síðan. Þar starfar sterkt og reynslumikið teymi með skýra sýn. Það verður einstaklega spennandi að efla frekari vöxt Ofar, þar sem tækifærin eru fjölmörg, og um leið nýta þau tækifæri sem skapast fyrir Nova klúbbinn á þeirri vaxtarvegferð sem við erum á,“ segir Sylvía Kristín. Gert er ráð fyrir að viðskiptin taki gildi að uppfylltum fyrirvörum, þar á meðal samþykki samkeppnisyfirvalda.
Nova Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Viðgerð á Grundartanga gengur betur en búist var við Viðskipti innlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Fleiri fréttir Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðgerð á Grundartanga gengur betur en búist var við Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Húsasmiðjunni Sjá meira