Viðskipti innlent

Bein út­sending: Iðnþing 2026

Árni Sæberg skrifar
Árni Sigurjónsson er fráfarandi formaður SI.
Árni Sigurjónsson er fráfarandi formaður SI. Samtök Iðnaðarins

Iðnþing Samtaka iðnaðarins, sem ber yfirskriftina Finnum samhljóminn, hefst klukkan 14 í Silfurbergi í Hörpu. Beina útsendingu frá þinginu má sjá á Vísi.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að aldrei áður hafi svo margir skráð sig á þingið en búist sé við um 700 gestum á þingið.

„Við byggjum öll okkar lífskjör á framleiðslu verðmæta. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og breytt aðgengi að erlendum mörkuðum kalla á sterka hagsmunagæslu Íslands. Óvissa og auknar þrengingar í efnahagsmálum hér á landi krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls. Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um nauðsynlegar umbætur.“

Þátttakendur í dagskrá Iðnþings 2026:

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Ísland
  • Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical
  • Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech
  • Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals
  • Inga Helga Halldórudóttir, yfirlögfræðingur Mílu
  • Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness
  • Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI

Beina útsendingu má sjá í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×