Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Valur Páll Eiríksson skrifar 12. mars 2026 13:30 Max Verstappen er á barmi keppnisbanns. Clive Rose/Getty Images Max Verstappen segist óska þess að Formúla 1 væri „skemmtilegri“. Miklar breytingar á reglugerð um bíla hefur ollið fjaðrafoki í upphafi nýhafins tímabils. Verstappen er vongóður um breytingar til hins betra.
Breytingarnar sem hafa hvað mest áhrif á ökuþórana hafa með nýjar vélar. Rafknúni hluti vélarinnar var aukinn og er nú skipt 50-50 milli brunahreyfils og rafknúna hlutans. Áður var vægi brunahreyfilsins meiri. Þetta hefur þær afleiðingar að ökuþórar þurfa að beita nýjum og ef til vill óvenjulegum aðferðum við akstur til að þeir hafi næga hleðslu á rafhlöðinni til að hámarka afköst. Verstappen, fjórfaldur heimsmeistari sem ekur fyrir Red Bull, er á meðal fjölmargra ökuþóra í Formúlu 1 sem þykir ný hönnun bílanna og orkuhluta bílsins draga úr ánægju þess að keppa í bestu aksturskeppni heims. „Ég er svolítið ráðþrota, því ég hef ekki mikla ánægju af að keyra bílinn en ég hef gaman af að vinna með liðinu,“ sagði Verstappen hjá Red Bull. „Ég vil ekki yfirgefa [Formúlu 1] en ég vona auðvitað líka að þetta batni. Ég hef átt viðræður við Formúlu 1 og [stjórnarsamtökin] FIA og við erum að vinna að einhverju sem vonandi mun bæta allt.“ Yfirmenn Formúlu 1 samþykktu upphaflega að fara yfir reglurnar eftir fyrstu þrjár keppnir tímabilsins og greina hvort gera þurfa á þeim breytingar. Nú virðist möguleiki á að breytingar verði gerðar strax eftir keppnina í Kína um helgina, sem er sú önnur á tímabilinu eftir fyrsta kappaksturinn í Ástralíu á sunnudaginn var. Formúlu 1 keppni helgarinnar fer fram í Sjanghæ í Kína. Sýnt verður frá öllu því helsta á Sýn Sport Viaplay. Dagskráin er eftirfarandi: 13. mars (í nótt) 03:30 Æfing 1 07:30 Tímataka fyrir sprettkeppni 14. mars (aðfaranótt laugardags) 03:00 Sprettkeppni 06:45 Tímataka fyrir kappakstur 15. mars (aðfaranótt sunnudags) 06:30 Sjanghæ-kappakstur
Akstursíþróttir Mest lesið „Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Sport Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Körfubolti Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Körfubolti Blikar knúðu fram oddaleik Körfubolti Alfreð fékk heiðursorðu Handbolti Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag Íslenski boltinn Skoraði tveimur dögum eftir jarðarför móður sinnar Enski boltinn 44 hringir ekki nóg fyrir sigurvegarann: „Hefði viljað reyna við brautarmetið“ Sport Fanney skoraði sjálfsmark en Häcken enn með fullt hús stiga Fótbolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira