Golf

Hætti keppni á Players-mótinu eftir að­eins eina holu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Collin Morikawa hefur verið að spila mjög vel á leiktíðinni en nú gaf líkaminn sinn á einu af stóru mótunum.
Collin Morikawa hefur verið að spila mjög vel á leiktíðinni en nú gaf líkaminn sinn á einu af stóru mótunum. Getty/Joe Robbins

Bandaríski kylfingurinn Collin Morikawa dró sig úr keppni á Players-meistaramótinu í golfi vegna bakmeiðsla.

Sigurvegari Pebble Beach Pro-Am-mótsins á þessu tímabili hafði aðeins leikið eina holu á fyrsta hringnum þegar hann tók æfingasveiflu á fullum hraða á ellefta teig og hætti við.

„Mér leið vel í upphitun og ekki voru merki um bakvandamál. Svo stillti ég upp á elleftu holu, tók eina æfingasveiflu og vissi bara að bakið var farið,“ sagði Morikawa.

„Ég fékk sömu tilfinningu og áður þegar þetta hefur gerst og ég bara get ekki sveiflað í gegnum það. Treystu mér, ég myndi spila ef ég gæti. Þetta er bara það versta í heimi,“ sagði Morikawa.

Morikawa, sem var einn af þeim sem þóttu sigurstranglegastir á TPC Sawgrass-vellinum í þessari viku, greip um bakið og gretti sig áður en hann kallaði á sjúkraþjálfara. Hann eyddi nokkrum tíma í að meta stöðuna áður en hann var fluttur af golfvellinum á golfbíl og dró sig síðan formlega úr keppni.

Morikawa glímdi einnig við bakvandamál árið 2021 á Ólympíuleikunum í Tókýó og árið 2023 sem neyddi hann til að draga sig úr keppni á Memorial-mótinu það ár.

Fyrr í vikunni talaði Morikawa um hvernig spilamennska hans undanfarið hefði byggst á því að hann einbeitti sér að líkamanum utan keppnistímabilsins.

„Satt best að segja hafði ég mikið sjálfstraust þegar ég kom inn í þetta ár. Ég lagði mikla vinnu í líkamann minn bara til að verða almennt sterkari, heilbrigðari og í betra formi,“ sagði Morikawa.

Hinn 29 ára gamli Morikawa, sem er í forystu í FedEx-bikarnum í upphafi tímabils, hefur náð einu af tíu efstu sætunum á þremur mótum á þessu tímabili og var í sínu besta formi. Fyrir utan sigurinn á Pebble Beach fyrr á þessu ári lenti hann í fimmta sæti á Arnold Palmer Invitational í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×