Formúla 1 orðin „rafhlöðu heimsmeistaramótið“ Valur Páll Eiríksson skrifar 17. mars 2026 16:17 Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari og ökuþór Aston Martin Vísir/Getty Fernando Alonso hrífst lítið af umdeildum og veigamiklum breytingum á bílum í Formúlu 1 kappakstrinum fyrir yfirstandandi leiktíð. Skiptar skoðanir eru á nýjum bílum og gagnrýnin töluverð í upphafi leiktíðar.
Breytingarnar sem hafa hvað mest áhrif á ökuþórana hafa með nýjar vélar. Rafknúni hluti vélarinnar var aukinn og er nú skipt 50-50 milli brunahreyfils og rafknúna hlutans. Áður var vægi brunahreyfilsins meiri. Þetta hefur þær afleiðingar að ökuþórar þurfa að beita nýjum og ef til vill óvenjulegum aðferðum við akstur til að þeir hafi næga hleðslu á rafhlöðinni til að hámarka afköst. Alonso hefur átt í sérlega miklum vandræðum með liði Aston Martin en bíll þess liðs er skemst á veg kominn hvað þróun varðar. Hvorki Alonso né liðsfélaginn Lance Stroll hafa klárað fyrstu tvær keppnirnar og sagði Alonso á dögunum óttast taugaskaða við of langan tíma í senn í Aston Martin-bílnum. Jákvæði bletturinn hefur þó verið að Alonso hefur náð að komast úr 17. og 18. sæti upp í tíunda sæti í fyrstu tveimur keppnunum, áður en hann og/eða bíllinn gefst upp. „Ræsingin er skemmtileg. Bæði í Ástralíu og Kína, bíllinn fer hratt af stað,“ „Á fyrsta hring erum við með rafhlöðu á pari við aðra, sem er full. En svo hefst rafhlöðuheimsmeustaramótið og í því móti erum við ekki eins góðir og aðrir,“ segir Alonso sem skýtur þar á aukið vægi rafhluta bílsins.
Akstursíþróttir Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira