Golf

Tiger Woods gefur ekkert upp enn­þá

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods hefur unnið Mastersmótið fimm sinnum á ferlinum. 
Tiger Woods hefur unnið Mastersmótið fimm sinnum á ferlinum.  Getty/Michael Owens

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods vill ekki gefa neitt upp um stöðu sína fyrir Masters-mótið í golfi í næsta mánuði.

Tiger sagði fréttamönnum að heilsa hans væri áfram upp og ofan en umræða um mögulega þátttöku hans á Mastersmótinu fór af stað þegar sást til einkaflugvélar hans í Augusta þar sem mótið fer fram.

„Ég sagði að ég hefði verið að vinna í þessu. Stundum á ég góða daga, stundum á ég slæma daga. Það er ekki mikið gaman að fara í liðþófaskipti,“ sagði Tiger Woods.

„Eins og ég sagði hef ég farið í margar aðgerðir áður, þannig að líkaminn jafnar sig ekki alveg eins og þegar ég var 24 ára. Hann nær sér ekki alveg jafn vel. Þannig að ég á góða daga þegar ég get gert nánast hvað sem er, og aðra daga þegar það er erfitt að hreyfa sig,“ sagði Woods.

Hinn fimmtugi Tiger fór í liðþófaskiptaaðgerð á mjóhrygg í október. Hann sleit einnig vinstri hásin í mars síðastliðnum.

Þessi fimmtánfaldi risamótsmeistari hefur ekki spilað á móti síðan á Opna breska meistaramótinu á Royal Troon árið 2024. Hann hefur unnið Masters-mótið fimm sinnum, síðast árið 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×