Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. mars 2026 07:09 Á fyrstu tveimur mánuðum ársins urðu 264 nýjar íbúðir fullbúnar á landinu öllu. Vísir/Vilhelm Íbúðum til sölu hefur fjölgað verulega frá áramótum. Í byrjun janúar voru 5.100 íbúðir skráðar til sölu á landinu öllu en í byrjun mars voru þær yfir 6.000 talsins.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Íbúðum til sölu hefur fjölgað mest á höfuðborgarsvæðinu eða um tæplega 440 íbúðir, samanborið við tæplega 270 íbúðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og rúmlega 160 íbúðir annars staðar á landsbyggðinni. „Á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess má rekja framboðsaukningu undanfarinna mánaða til fjölgunar bæði nýrra og eldri íbúða til sölu. Á landsbyggðinni skýrist framboðsaukningin hins vegar að lang mestu leyti af fjölgun nýrra íbúða til sölu sem tengjast margar hverjar tveimur nýjum fjölbýlum á Akureyri,“ segir í samantekt um skýrsluna. Um það bil 68 prósent allra leigusamninga á landinu í byrjun marsmánaðar voru um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, 15 prósent íbúðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og 17 prósent íbúðir annars staðar á landsbyggðinni. Dreifing leigusamninga er í grófum takti við dreifingu mannsfjöldans. Hrein ný óverðtryggð lántaka hjá bönkunum nam 3 milljörðum króna í janúar 2026 en hrein ný verðtryggð lántaka nam 1,1 milljarði króna, segir í skýrslunni. „Þannig voru hrein ný óverðtryggð lán í miklum meirihluta hjá bönkunum í mánuðinum. Hjá lífeyrissjóðunum voru verðtryggð útlán hins vegar nánast allsráðandi en uppgreiðslur á óverðtryggðum lánum umfram ný útlán námu hálfum milljarði króna í mánuðinum. Undanfarna mánuði hefur hægt á uppgreiðslum óverðtryggðra lána samhliða lækkun stýrivaxta og samhliða hefur hægt á lækkun hlutfalls óverðtryggðra lána af heildaríbúðalánum til heimila. Hlutfallið stóð í 34,5% í janúar síðastliðnum og hafði þá lækkað samfellt frá því að það náði hámarki í rúmlega 55% um mitt ár 2022.“ Hér má finna skýrsluna í heild.
Fasteignamarkaður Leigumarkaður Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Sjá meira