Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Lovísa Arnardóttir skrifar 7. apríl 2026 16:34 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Lýður Valberg Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10 prósentum fleiri en í mars á síðasta ári. Í mánuðinum voru 39 prósent farþega á leið til Íslands, 22 prósent frá Íslandi, 32 prósent voru tengifarþegar og sjö prósent ferðuðust innanlands.
Í tilkynningu frá Icelandair segir að farþegum á leið til Íslands hafi fjölgað um 16 prósent á milli ára og farþegum frá Íslandi um 32 prósent. Sætanýting var samkvæmt tilkynningu 83,5 prósent og jafnaði met síðasta árs fyrir marsmánuð. Stundvísi var 75,4 prósent en veður hafði umtalsverð áhrif á stundvísi í mánuðinum. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 45 prósent og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, jukust um sjö prósent. „Við sjáum áframhaldandi góðan árangur af áherslum okkar á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi. Þessi stefna skilar sér í minni árstíðasveiflu og gerir okkur kleift að beina framboðinu á þá markaði sem skila mestri framlegð hverju sinni. Í mánuðinum var 45% aukning í leiguflugsstarfseminni okkar sem styður einnig við minnkun árstíðasveiflunnar. Í mánuðinum hófum við flug til Faro í suðurhluta Portúgals og hafa viðskiptavinir tekið þessum nýja áfangastað mjög vel,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni. Þar segir hann eldsneytisverð einnig hafa hækkað hratt í mánuðinum vegna átaka í Mið-Austurlöndum. „Við höfum brugðist við með margvíslegum aðgerðum, meðal annars ráðist í kostnaðaraðhald, endurskoðað fargjöld og aðlagað framboð í öðrum ársfjórðungi. Krefjandi veðurskilyrði á Íslandi höfðu umtalsverð áhrif á flugáætlun okkar í seinni hluta mánaðarins. Ég vil þakka viðskiptavinum okkar fyrir skilninginn og samstarfið í þessum aðstæðum og starfsfólki Icelandair sem lagði sig fram um að lágmarka áhrifin og koma farþegum á öruggan hátt á áfangastað,“ segir Bogi að lokum.
Icelandair Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Rafmagnið sló út á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna eldingar sem laust niður á Búrfellslínu. Flugvöllurinn var keyrður á varaafli. 7. apríl 2026 10:47 Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Óveðrið sem gengur brátt yfir landið er farið að hafa áhrif á flugferðir Icelandair og hafa nokkrar utanlandsferðir verið felldar niður í fyrramálið. „Það er náttúrulega spáð mjög slæmu veðri um allt land á morgun og við gerum alveg ráð fyrir að það muni valda einhverjum röskunum á flugi.“ 5. apríl 2026 19:41 Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Flugferðum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Unnið er að endurskipulagningu flugferða til að ferðalangar komist á áfangastað í síðasta lagi á morgun. 2. apríl 2026 17:44 Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira
Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Rafmagnið sló út á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna eldingar sem laust niður á Búrfellslínu. Flugvöllurinn var keyrður á varaafli. 7. apríl 2026 10:47
Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Óveðrið sem gengur brátt yfir landið er farið að hafa áhrif á flugferðir Icelandair og hafa nokkrar utanlandsferðir verið felldar niður í fyrramálið. „Það er náttúrulega spáð mjög slæmu veðri um allt land á morgun og við gerum alveg ráð fyrir að það muni valda einhverjum röskunum á flugi.“ 5. apríl 2026 19:41
Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Flugferðum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Unnið er að endurskipulagningu flugferða til að ferðalangar komist á áfangastað í síðasta lagi á morgun. 2. apríl 2026 17:44