Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Lovísa Arnardóttir skrifar 29. apríl 2026 07:54 María Björk framkvæmdastjóri Símans. Tekjur Símans á fyrsta ársfjórðungi 2026 námu 7,2 milljörðum samanborið við 7,1 milljarð á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 1,1 prósent. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu stóðu nánast í stað á milli ára.
Tekjur af auglýsingamiðlun námu 607 m.kr. samanborið við 563 m.kr. á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 7,8 prósent samkvæmt ársfjórðungsuppgjöri Símans. Þar kemur einnig fram að vörusala hafi aukist um 8,4 prósent á milli ára. „Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í samræmi við áætlanir og ber merki um þann stöðugleika sem einkennir grunnrekstur Símans. Þrátt fyrir að við höfum séð fækkun viðskiptavina í fjarskiptum og sjónvarpi á haustmánuðum voru tekjur af kjarnavörum Símans óbreyttar milli ára, en aftur á móti hækkaði kostnaðarverð seldra vara milli ára, einkum vegna vísitölutengds kostnaðar innviðabirgja og kjarasamningsbundinna launahækkana,“ segir María Björk Einarsdóttir forstjóri í tilkynningu um uppgjörið sem var birt í gær. Hún segir ánægjulegt að sjá góðan vöxt í auglýsingatekjum og tekjum af fjártækni milli ára, „Það hefur verið lykiláhersla síðustu misseri að fjölga tekjustoðum félagsins. Sagan hefur sýnt okkur að tekjur af fjarskiptarekstri halda sjaldnast í við verðbólgu og afkomubati síðustu ára hefur því verið drifinn áfram af aukinni skilvirkni í rekstrinum. Áframhald þar á mun byggja á aukinni nýtingu gervigreindar á öllum sviðum rekstursins,“ segir María. Fjölga tekjustoðum Hún segir að samhliða því sé verið að fjölga tekjustoðum og nýta þannig innviði og styrkleika félagsins enn betur. „Á síðustu mánuðum höfum við kynnt metnaðarfulla vegferð umbreytingar yfir í fjölbreytta stafræna þjónustusamstæðu undir merkjum Ása. Sterkt sjóðstreymi og hófleg skuldsetning gerir félagið vel í stakk búið fyrir ytri vöxt, og á fjórða ársfjórðungi síðasta árs tilkynntum við um kaup á Greiðslumiðlun Íslands, OK og Öryggismiðstöð Íslands. Þessi félög eiga það öll sammerkt að bjóða upp á stafrænar lausnir í fremstu röð og búa yfir víðtækum viðskiptasamböndum á fyrirtækjamarkaði,“ segir María. Í mars hafi svo verið tilkynnt um undirritun skilmálaskjals um möguleg kaup Símans á útvarps- og vefmiðlum Sýnar. „Þar undir eru vandaðir miðlar með mikla útbreiðslu og öflugan mannauð. Verði af viðskiptunum mun sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum verða í góðri stöðu til að veita framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu rekstrarumhverfi.“ Horfur góðar og afkomuspá óbreytt María segir einnig að einstaklega vel heppnuð yfirtaka á Billboard, markviss uppbygging efnisveitunnar og sú áhersla sem þau hafi lagt á þróun auglýsingatækni, hafi mótað sterkan grunn til að byggja slíka einingu upp með góðum árangri. Horfur fram undan í rekstrinum eru góðar og afkomuspáin er óbreytt. Við höfum séð viðsnúning í fjarskiptum og sjónvarpi þar sem viðskiptavinum er byrjað að fjölga á ný eftir brottfall á haustmánuðum. Þá er áfram sterk sala í auglýsingum, meðal annars í tengslum við sveitastjórnarkosningar, þar sem bæði sjónvarps- og umhverfismiðlar Símans bjóða upp á landfræðilega markmiðaðar auglýsingar sem henta sérstaklega vel fyrir stjórnmálaflokka sem vilja nýta auglýsingafé sitt sem best.” Í tilkynningu um uppjgörið kemur einnig fram að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hafi numið 1.362 m.kr. á 1F 2026 og hækkaði um 90 m.kr. eða 7,1 prósent frá sama tímabili 2025. EBITDA-hlutfallið er 18,8 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026 en var 17,7 prósent á sama tímabili 2025. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 416 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við 189 m.kr. á sama tímabili 2025. Aðlagað fyrir gjaldfærslu vegna dómsmáls nam EBITDA 1.439 m.kr. (19,9%) á 1F 2026 samanborið við 1.733 m.kr. á sama tímabili 2025. EBIT, aðlagað fyrir sektar- og skaðabótagreiðslum ásamt afskriftum óefnislegra eigna, nam 528 m.kr. (7,3%) samanborið við 677 m.kr. á sama tímabili 2025. Hrein fjármagnsgjöld námu 180 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 en námu 321 milljón á sama tímabili 2025. Fjármagnsgjöld námu 462 milljónum króna, fjármunatekjur voru 244 milljónir króna og gengishagnaður nam 38 milljónum. Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2026 nam 171 milljón samanborið við 188 milljóna króna tap á sama tímabili 2025. Hagnaður á hlut nam 0,07 kr. á fjórðungnum. Í tilkynningu kemur einnig fram að eiginfjárhlutfall Símans var 35,4 prósent í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 og eigið fé 16,7 milljarðar króna.
Síminn Fjarskipti Bíó og sjónvarp Fjölmiðlar Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira