Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. maí 2026 14:30 Handritaskrif á framhaldi að Verbúðinni eru langt komin og Vesturport vinnur líka að þáttum upp úr einleiknum Á rauðu ljósi eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur. Vesturport vinnur að sjónvarpsþáttaröð upp úr gamansýningunni Á rauðu ljósi eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem verður sýnd á Rúv. Handritaskrif annarrar þáttaraðar af Verbúðinni eru jafnframt langt komin og eru tvær kvikmyndir í bígerð hjá Vesturporti.
Á rauðu ljósi er einleikur sem Kristín Þóra Haraldsdóttir skrifaði, leikstýrði og lék í og fjallar um stressið sem fylgir því að vera manneskja. Sýningin var fyrst sett á svið í Þjóðleikhúskjallaranum 2023 en fór svo yfir á stóra svið Þjóðleikhússins. Sýningin hefur nú fengið frekara framhaldslíf því Vesturport hyggst breyta henni í sjónvarpsþætti. Kristín Þóra skrifar sjálf aðlögun verksins að skjánum og fer með aðalhlutverkið. „Hún er náttúrulega svo klár, það er brilljant það sem er komið. Við erum að gera þetta með Rúv og þau eru búin að gefa grænt ljós,“ segir Rakel Garðarsdóttir, framleiðandi hjá Vesturporti. Verbúðarframhald, Garðarshólmi og mynd um Láru miðil Það eru ekki einu sjónvarpsþættirnir sem eru í bígerð hjá Vesturporti því skrif á framhaldi Verbúðarinnar eru í fullum gangi. „Það er verið að skrifa það handrit og gengur rosalega vel, er að klárast í skrifum,“ segir Rakel. Hún segir yfirleitt mörg verkefni í gangi hjá Vesturporti hverju sinni. Fyrir utan fyrrnefndar þáttaraðir séu tvær kvikmyndir í framleiðslu. „Við erum að fara til Cannes í næstu viku að kynna tvær myndir sem eru í framleiðslu en handritin eru tilbúin á þeim báðum,“ segir Rakel. „Önnur heitir Garðarshólmi, skrifuð af Birni Hlyni og hann leikur aðalhlutverkið í henni. Hin heitir Klara, er skrifuð af Sjón og byggir á sögunni af Láru miðli. Hún er á ensku en tekin upp á Íslandi og við erum í viðræðum við þekkta erlenda leikara,“ segir hún. Það er því nóg framundan hjá Vesturporti og tökurnar á Garðarshólma næstar á dagskrá.
Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Vesturport hyggst ráðast í framhaldsþáttaseríu af Verbúðinni, seríu sem sló í gegn á Ríkisútvarpinu fyrir nokkrum árum síðan. Nýja serían hefur enn ekki fengið íslenskt heiti en heitir Stick 'Em Up á ensku, eða Hendur upp og verður hún kynnt nánar á kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni Series Mania síðar í mánuðinum. 13. mars 2025 15:04 Drög lögð að framhaldi Verbúðarinnar Leikhópurinn Vesturport er að hefjasta handa við handritsskrif að framhaldi sjónvarpsþáttanna Verbúðinni. 22. nóvember 2022 16:17 Mest lesið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Vesturport hyggst ráðast í framhaldsþáttaseríu af Verbúðinni, seríu sem sló í gegn á Ríkisútvarpinu fyrir nokkrum árum síðan. Nýja serían hefur enn ekki fengið íslenskt heiti en heitir Stick 'Em Up á ensku, eða Hendur upp og verður hún kynnt nánar á kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni Series Mania síðar í mánuðinum. 13. mars 2025 15:04
Drög lögð að framhaldi Verbúðarinnar Leikhópurinn Vesturport er að hefjasta handa við handritsskrif að framhaldi sjónvarpsþáttanna Verbúðinni. 22. nóvember 2022 16:17