Gætu lagt 757-þotunum í haust Birgir Olgeirsson skrifar 6. maí 2026 11:54 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir fargjöld hafa hækkað vegna hækkandi eldsneytisverðs. Framboð félagsins var skorið niður um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi og verður skorið niður um fimm prósent til viðbótar í haust. Vísir/Vilhelm Icelandair ætlar að draga flugframboð sitt saman um tæp fimm prósent í haust vegna hækkandi eldsneytisverðs. Samdrátturinn verður hlutfallslega meiri á Norður-Ameríkumarkaði en í Evrópu. Félagið hafði þegar brugðist við kostnaðarhækkunum með því að skera framboð niður um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi, hækka fargjöld og herða aðhald í rekstri.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir niðurskurðinn í haust dreifast um leiðakerfið en að vestanhafs verði áhrifin meiri. „Það er svona þvert á kerfið. Við erum að horfa til þess að taka út flug sem að við erum með fleiri en eitt flug á dag og getum komið farþegum okkar á leiðarenda. En það er hlutfallslega meira í Norður-Ameríku heldur en í Evrópu.“ Félagið er jafnframt að meta hvort rétt sé að flýta útfösun nokkurra Boeing 757-farþegaþota og hætta rekstri þeirra strax í haust í stað þess að halda þeim út sumarið 2027. Ástæðan er að þær eru ekki jafn sparneytnar og nýrri vélar í flotanum. Hækkanir á eldsneytisverði hafa einnig skilað sér út í verð til farþega. Forstjórinn segir þó ekki hægt að setja breytingarnar fram í einni almennri prósentutölu þar sem þær séu mismunandi eftir mörkuðum. „Það er breytilegt eftir mörkuðum og ýmislegt þess háttar en fargjöld hafa hækkað út af hærri kostnaði. Það er óumflýjanlegt.“ Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi. Bogi segir uppgjörið engu að síður hafa verið gott, enda hafi reksturinn batnað frá fyrra ári. Fram undan sé þó óvissa, bæði vegna áframhaldandi sveiflna í eldsneytisverði og lausra kjarasamninga við flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja. Viðræður við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og flugvirkja eru hjá ríkissáttasemjara, en samtal við Flugfreyjufélagið er ekki komið á það stig. Aflýsa þurfti ferð Icelandair til Kaupmannahafnar í gær og var Bogi spurður hvort hann teldi það tengjast kjaraviðræðum eða mögulegum óformlegum aðgerðum. Hann segist ekki trúa því. „Eins og kom fram í fjölmiðlum þá kom held ég formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna fram og sagði að það væru engar aðgerðir í gangi og það er í takt við það sem ég sagði að ég trúi ekki að svo sé enda er engin skynsemi í því við núverandi aðstæður. Við erum að glíma við þessa óvissu, hækkandi eldsneytisverð. Við erum að bjóða frábær starfskjör, ein og þau bestu á Norðurlöndunum, fyrir okkar flugfólk og laun á Íslandi hafa hækkað verulega. Það eru engar forsendur fyrir því og engin skynsemi í því að okkar starfsfólk sé að grípa til aðgerða í þessum umhverfi sem við erum að vinna í í dag.“
Icelandair Kjaramál Fréttir af flugi Boeing Ferðalög Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira