„Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Sindri Sverrisson skrifar 16. maí 2026 09:01 Ragnhildur Kristinsdóttir átti afar spennandi golfár í fyrra. vísir/Anton „Þetta er lífið í ferðatösku, eins og hjá atvinnumönnum. En maður velur þetta og þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt,“ segir Ragnhildur Kristinsdóttir, einn fremsti kylfingur landsins, sem verður að vanda á faraldsfæti í sumar.
Ragnhildur er ein þeirra sem ekki spila á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, Reykjanesmótinu, nú um helgina vegna móts í Austurríki. Hún spilar á LET Access mótaröðinni í sumar, þeirri næststerkustu í Evrópu, eftir að hafa verið eins nálægt því og hugsast gæti að tryggja sig inn á sjálfa Evrópumótaröðina í fyrra. Segja má að einu höggi hafi munað, eftir allt keppnistímabilið þar sem Ragnhildur náði þó meðal annars að vinna mót á LET Access mótaröðinni, fyrst Íslendinga. Miklar framfarir og meiri virðing „Þetta sýnir hvað það er stutt á milli í þessu. Hefðir þú spurt mig í apríl í fyrra hvort ég myndi þiggja að vinna eitt mót og enda tvisvar í 2. sæti, þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu. En þegar maður endar svo í október tveimur stigum [eða einu höggi] frá því að fá fullt kort á Evrópumótaröðinni þá er það súrsætt. En maður reynir að horfa björtum augum á þetta og sjá hvað maður er að taka miklum framförum. Fá meiri virðingu innan mótaraðarinnar,“ segir Ragnhildur. Hún er þó með takmarkaðan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni og þarf að vera viðbúin því að fljúga af stað með skömmum fyrirvara, þegar boð fæst um að spila þar: „Lífið er á Dohop. Maður kíkir á flug til að sjá hvar er einfaldast og ódýrast að ferðast. En maður velur sér þetta og þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir,“ segir Ragnhildur en viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér að neðan. Klippa: Ragnhildur klár í golfið og flakkið Hægt að koma frá litla Íslandi og spila gott golf Það hlýtur að vera ánægjulegt að hafa brotið það blað fyrir Íslendinga að vinna mót á LET Access? „Það er það en svo verður að horfa í að það komu fleiri á undan manni sem sýndu að það er hægt að koma frá litla Íslandi og spila gott golf. Þó við séum lítil þjóð erum við ágætlega góð í golfi og það er mjög skemmtilegt að geta sýnt það á heimsvísu,“ segir Ragnhildur og bendir á yngri áhugakylfinga sem náð hafa langt nú þegar: „Perla [Sól Sigurbrandsdóttir] og Gulli [Gunnlaugur Árni Sveinsson] eru að brjóta blöð í íslenskri golfsögu og að sjá það utan frá er mjög gaman. Maður hefði viljað geta gert það sjálfur en að geta vonandi líka ýtt þeim meira áfram er mjög skemmtilegt.“
Golf Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja Sjá meira