„Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Árni Sæberg skrifar 20. maí 2026 12:21 Karen Áslaug Vignisdóttur, aðalhagfræðingur Seðlabankans og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Seðlabankastjóri segir verðbólgu allt of mikla og að peningastefnunefnd hafi ákveði að hækka vexti í 7,75 prósent til þess að koma í veg fyrir að hún aukist enn meira. Framhaldið muni ráðast af því hvað gerist í haust, þegar forsenduákvæði kjarasamninga mun virkjast, miðað við verðbólguspá Seðlabankans. „
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun,“ sagði í upphafi yfirlýsingar peningastefnunefndar, sem birt var í morgun. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ræddi við fréttastofu að loknum kynningarfundi vegna ákvörðunar nefndarinnar. „Það sem við erum að sjá núna er að verðbólga er allt of há, hún er 5,2 prósent. Hún er rekin áfram af ýmsum þáttum. Innlendum verðbólguþrýstingi en líka náttúrulega hærra olíuverði. Þannig að í ljósi þessa höfum við ákveðið að hækka vexti, til þess að tryggja það að hún rísi ekki hærra. Hvað síðan gerist núna á næstu mánuðum, það veltur á ýmsum þáttum eins og hvort samningar á vinnumarkaði muni losna eða ekki og ýmsu öðru.“ Verði verðbólga yfir 4,7 prósentum í ágústmælingu Hagstofunnar opnast heimild til að segja upp svokölluðum stöðugleikasamningum ef ekki næst að semja um viðbragð við forsendubresti. Samkvæmt verðbólguspá Seðlabankans verður verðbólga vel yfir því markmiði í ágúst. Launahækkanir meiri en stefnt var að Ásgeir segir ekki vitað hvaða áhrif það myndi hafa ef kjarasamningum verður sagt upp. „Þessir kjarasamningar sem voru gerðir fyrir tveimur árum, markmið þeirra var stöðugleiki, markmið þeirra voru lægri vextir. Markmið samninganna gekk kannski ekki að öllu leyti eftir, það er að segja að launahækkanir hafa verið meiri á Íslandi heldur en þessir samningar gerðu ráð fyrir. Það voru að vísu ekki öll félög sem stóðu að þessu á sínum tíma og ég trúi því að íslensk verkalýðshreyfing sé enn með þessi markmið, að við viljum sjá lægri vexti og við viljum sjá stöðugleika. Þannig að ég trúi því að það verði leitað skynsamlegrar niðurstöðu í haust, en í þessari spá okkar erum við að gera ráð fyrir því að launahækkanir verði áfram meiri.“ Finnst þér verkalýðshreyfingin eða einstök verkalýðsfélög bera ábyrgð á því hvernig staðan er núna? „Ég held að þetta sé að einhverju leyti sameiginleg ábyrgð allra verkalýðsfélaga og það voru ákveðin félög sem gerðu samninginn í upphafi og þau voru með ákveðin markmið, sem mögulega hafa ekki gengið yfir allan vinnumarkaðinn, en þetta er kannski ekki fyrir mig að tjá mig um. Það sem við sjáum er það að það hafa verið meiri launahækkanir.“ Fordæmalaus aukning kaupmáttar Þá segir Ásgeir að undanfarin ár hafi aukning kaupmáttar á Íslandi verið fordæmalaus, þrjú til fimm prósent á ári síðastliðin fimm ár. „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu og á sama tíma erum við að sjá að efnahagshorfur eru að versna í útlöndum. Þannig að það er mjög ólíklegt að meiri kauphækkanir muni skila einhverju til fólksins í landinu. En við auðvitað bara bregðumst við, okkur er falið það verkefni að reyna að halda verðlagi stöðugu og við erum með ákveðin tæki til þess sem við verðum að beita.“ Vonuðust til að sleppa við harða lendingu Þá segir Ásgeir að nefndin hafi áhyggjur af auknu atvinnuleysi. Vinnumarkaðurinn sé byrjaður að kólna og störfum hætt að fjölga. „Við vorum auðvitað að vonast til þess að geta náð verðbólgu niður án þess að það kæmi til hörð lending eða við sæjum atvinnuleysi. En mögulega mun það verða erfitt. Það er að einhverju leyti líka samvinnuverkefni við þá verkalýðsfélögin, miklar hækkanir á launum geta líka valdið minni fjölgun starfa. Við erum að sjá kólnun í hagkerfinu. Það sem er að leggjast til er aukning á útflutningi. Við erum að sjá hækkun á þorskverði, loðna gekk inn í landhelgina. Við erum að sjá sólmyrkva og líka hækkun á álverði. Þannig að hagvöxturinn þessu ári er að mestu marki að koma til vegna útflutnings, sem er alveg jákvætt.“
Seðlabankinn Vinnumarkaður Efnahagsmál Kjaramál Verðlag Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira