Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Andri Broddason skrifar 24. maí 2026 22:07 Antonelli er kominn í góða stöðu í heimsmeistaramóti Formúlu 1 Bryn Lennon - Formula 1/Formula 1 via Getty Images Kimi Antonelli sigraði Kanada kappaksturinn sem var haldinn í Kanada. Hann stækkar forskot sitt á heimsmeistaramóti ökumanna um 25 stig.
Ítalinn ungi Kimi Antonelli sigraði fjórðu keppni sína í röð á tímabilinu og er kominn með gott forskot í heimsmeistaramótinu. Aðalkeppinautur hans í heimsmeistarakeppninni, bíll Mercedes liðsfélaga hans og aðalkeppinautar, George Russell, bilaði eftir aðeins 30 hringi keyrða. Það voru erfiðar aðstæður í Kanada í dag þar sem það var mikill kuldi og erfitt að halda hita í dekkjum. McLaren ökumennirnir Lando Norris og Oscar Piastri sem byrjuðu keppnina í þriðja og fjórða sæti köstuðu keppninni frá sér í byrjun með því að byrja keppnina á grænmerktu vætudekkjunum. Kappakstursbrautin var blaut þegar keppni hófst en var fljót að þorna og ljóst að of þurrt var fyrir vætudekkin og þurftu báðir að skipta um dekk snemma. Þetta var bara byrjunin af slæmum degi McLaren þar sem gírkassi Norris bilaði aðeins tíu hringjum eftir að bíll Russell bilaði. Piastri lenti einnig í veseni á meðan á keppninni stóð og kláraði keppnina stigalaus í ellefta sæti. Gamlir erkifjendur fengu að spreyta sig aftur Eftir að Russell og Norris duttu úr keppninni var hörð barátta milli Lewis Hamilton og Max Verstappen um annað sætið í keppninni. Hamilton náði að taka fram úr Verstappen þegar aðeins sex hringir voru eftir af keppninni. Hann náði þá öðru sætinu og Verstappen þurfti að sætta sig við það þriðja. Það er kannski erfitt að trúa því en þetta er í fyrsta skipti sem Verstappen kemst á verðlaunapall á tímabilinu. Næsta keppni fer fram í Mónakó 5. - 7. júní.
Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Fótbolti Fleiri fréttir Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira