Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sigurgeir Þorkelsson skrifar 30. maí 2026 11:41 Tilkynnt hefur verið um stórar uppsagnir í maímánuði sem ekki eru enn komnar fram í atvinnuleysistölum. Vísir/Vilhelm Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega.
Forstjóri Vinnumálastofnunar sagði í samtali við fréttastofu í gær að greinileg merki væru um kólnun á vinnumarkaði. Hagstofan birtir mánaðarlega tölur um atvinnuleysi á Íslandi. Tölur Hagstofunnar eru leiðréttar fyrir árstíðabundnum skekkjum, en atvinnuleysi á Íslandi eykst umtalsvert yfir vetrarmánuðina. Í apríl 2025 mældist atvinnuleysi 3,3% og hefur atvinnuleysi því aukist um tvö komma fimm prósentustig frá því fyrir ári. Alls eru nú 13.500 atvinnulaus á Íslandi samkvæmt Hagstofunni. Vísir hefur síðustu vikur birt fréttir af stórum uppsögnum. Hjá greiðslulausnafyrirtækinu Rapyd var um fjörutíu sagt upp og á skrifstofum Bláa lónsins tæplega þrjátíu. Þá neyddust Berjaya-hótel til að segja tæplega 300 upp. Tengjast uppsagnirnar tilfærslu Natura og Hilton Nordica hótelanna yfir til Íslandshótela. Stjórnendur Íslandshótela hafa sagt að vonir standi til að hægt sé að bjóða öllu starfsfólki áframhaldandi vinnu. Uppsagnir Bláa lónsins voru umtalsverðar og náðu til um fimmtungs starfsfólks á skrifstofu félagsins. Enn starfa þó tæplega 800 manns fyrir félagið. Rætt var við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar í gær vegna uppsagna hjá Bláa lóninu. Hann sagði stöðu innan geirans góða út sumarið en mikil óvissa taki við í haust. Þá væri sólmyrkvinn 12. ágúst næstkomandi mikil búbót fyrir greinina. Jóhannes sagði fyrirtæki mörg halda að sér höndum við ráðningar í núverandi ástandi. Þá hefðu sum fyrirtæki einnig gripið til minni uppsagna sem ekki kæmu endilega fram í fréttaflutningi. Þá ríkir óvissa í rekstri Icelandair og stendur félagið í rauðglóandi kjaradeilu við flugmenn, auk annarra stétta innan félagsins. Vísir hefur gert málinu skil ítarlega og má finna nýjustu frétt okkar um málið hér að neðan.
Efnahagsmál Kjaramál Tengdar fréttir Uppsagnir hjá Bláa lóninu Uppsagnir hafa staðið yfir í morgun í Bláa lóninu. 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn flytja milli sviða. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að skerpa á hlutverki móðurfélags lónsins. 28. maí 2026 11:34 Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29. maí 2026 13:37 Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira
Uppsagnir hjá Bláa lóninu Uppsagnir hafa staðið yfir í morgun í Bláa lóninu. 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn flytja milli sviða. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að skerpa á hlutverki móðurfélags lónsins. 28. maí 2026 11:34
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29. maí 2026 13:37