Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Andri Broddason skrifar 4. júní 2026 22:31 Leclerc er búinn að framlengja við Ferrari en fleiri lið reyndu að sækja ökuþórinn. Kym Illman/Getty Images Charles Leclerc framlengdi samning sinn við Ferrari í vikunni en greindi frá því að fleiri lið reyndu að semja við hann. Leclerc vildi ekki greina frá hvaða lið það væri.
Charles Leclerc er búinn að vera ökumaður Ferrari síðan 2019 eftir að hafa verið eitt ár með liði Sauber fyrir það. Leclerc framlengdi samning sinn við Ferrari en ekki kemur fram hversu langur samningurinn er. Hið minnsta er framlenging samningsins út árið 2028. Liðið sem gert er ráð fyrir að hafi verið í viðræðum við er lið Aston Martin. Liðið hefur ekki átt gott gengi það sem af er tímabils og er eitt af tveimur liðum sem hafa ekki enn þá fengið stig á tímabilinu. Leclerc mun á næsta ári hafa keyrt fleiri keppnir en Michael Schumacher fyrir ítalska liðið en hann hefur ekki notið sömu velgengni og hann. Schumacher varð heimsmeistari fimm sinnum og vann 72 keppnir fyrir Ferrari á meðan Leclerc hefur aðeins unnið átta. Leclerc er bjartsýnn fyrir framtíðinni og hefur trú á sér og liðstjóra Ferrari, Fred Vasseur, að koma liðinu aftur á toppinn í Formúlu 1. „Það er mikil nýsköpun á bílnum okkar og við erum með langtíma markmið.“ Eftir slæmt síðasta ár þar sem liðið endaði í fjórða sæti heimsmeistarakeppni bílasmiða hefur Ferrari byrjað vel í ár. Sem stendur er liðið í öðru sæti og Leclerc er í þriðja sæti heimsmeistaramóts ökuþóra. „Við vitum hvað vantar hjá okkur og það tengist vélinni í bílnum. Við erum með plan í vændum sem mun vonandi bæta stöðuna.“ Mónakókappaksturinn er um helgina og er það mikilvæg keppni fyrir Leclerc þar sem þetta er heimakeppnin hans. Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan eitt og er sýnd á Sýn sport Viaplay.
Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Enski boltinn Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Fótbolti Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Fótbolti Fleiri fréttir Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira