Formúla 1

Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjö­tti af stað

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Litlu munaði milli Verstappen og Antonelli í tímatökunni.
Litlu munaði milli Verstappen og Antonelli í tímatökunni. EPA/CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH

Kimi Antonelli hjá Mercedes var hraðastur í tímatökunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram í Mónakó á morgun. Rétt sneggri en Max Verstappen hjá Red Bull. George Russell hjá Mercedes var mun hægari.

Hvergi er mikilvægra að ná ráspólnum en í Mónakó, brautin þar er fræg fyrir fáar framúrtökur og í flestum tilfellum er sigurvegarinn sá sem fer fyrstur af stað.

Ferrari hafði heillað mest á æfingum í gær en í fjarveru liðsstjórans náðu Lewis Hamilton og Charles Leclerc að taka þriðja og fjórða sætið. Leclerc var með besta tímann eftir aðra umferðina en klessti bílinn í þriðju umferð tímatökunnar og náði því ekki að bæta sinn tíma.

Max Verstappen náði að bæta tíma Leclerc og allt leit út fyrir að hann myndi ná ráspólnum en þá kom Kimi Antonelli þjótandi og náði betri tíma, 0.043 sekúndum sneggri en Verstappen.

Mercedes mun því eiga fremsta bílinn þegar kappaksturinn fer af stað en George Russell verður mun aftar, í sjötta sæti. Hann stóð sig illa í tímatökunni í dag. Reikna má með því að munurinn á Antonelli og Russell, efstu mönnum heimslistans, aukist enn frekar á morgun.

Svona verður niðurröðunin í Mónakó á morgun:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×