Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 11:05 George Russell klórar sér í höfðinu. Joe Portlock/Getty Images Formúlu 1 ökuþórinn George Russell er undrandi á sjálfum sér þessa stundina. Hann skilur hreinlega ekkert í því hvað hann er hægur miðað við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Kimi Antonelli.
Antonelli átti besta tímann og verður á ráspól þegar kappaksturinn í Mónakó hefst á eftir. Russell keyrði samskonar Mercedes bíl en varð í sjötta sæti tímatökunnar, 0.4 sekúndum á eftir Antonelli. „Ég veit ekki alveg hvað er í gangi,“ sagði Russell við Sky Sports. Russell vann fyrstu keppni tímabilsins og sprettkeppnina í annarri keppni tímabilsins en hefur ekki fagnað sigri síðan. „Byrjun ársins var bara auðveld. Hver einasti hringur sem ég keyrði, hvort sem það var á æfingu, í sprettinum, tímatökunni, allt gekk upp. Síðustu þrjár keppnir hefur ekkert gengið upp… Þangað til ég geri breytingar mun það halda áfram að vera þannig.“ Russell átti frábært tímabil í fyrra en segir breytingar á Mercedes bílnum hafa haft áhrif á hann. „Það eru klárlega hlutir sem hafa breyst og henta mínum ökustíl ekki eins vel og í fyrra. Við Kimi keyrum ekki eins. Ég ætla ekki að fara út í smáatriðin en það er augljóst að í fyrra hentaði bíllinn mér vel en í ár hentar hann honum betur. Þannig að ég þarf að aðlaga mig. Ég skil samt ekki hvernig tímabilið gat byrjað svona vel. Ég veit það ekki, ég er svolítið ringlaður bara.“ Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó hefst klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
Akstursíþróttir Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Enski boltinn „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Fótbolti Fleiri fréttir Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira