Golf

Þriggja holu bráða­bana þurfti í ein­vígi Perlu og Elsu

Aron Guðmundsson skrifar
Perla Sól Sigurbrandsdóttir er komin áfram í undanúrslitin eftir æsispennandi einvígi.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir er komin áfram í undanúrslitin eftir æsispennandi einvígi. Vísir/Getty

Boðið var upp á æsispennandi einvígi í bæði karla- og kvennaflokki þegar að átta liða úrslit Íslandsmótsins í holukeppni fóru fram í dag.

Holukeppnin hjá konunum fer fram á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi og tryggðu þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir (Golfklúbburinn Keilir), Perla Sól Sigurbrandsdóttir (Golfklúbbur Reykjavíkur), Heiða Rakel Rafnsdóttir (Golfklúbbur Mosfellsbæjar) og Fjóla Margrét Viðarsdóttir (Golfklúbbur Suðurnesja) sæti í undanúrslitum mótsins með sigri í sínum einvígum í dag. 

Guðrún, Heiða og Fjóla unnu sín einvígi nokkuð örugglega á meðan að Perla Sól mætti Elsu Maren Steinarsdóttur (Golfklúbburinn Leynir) í hörku einvígi. 

Staðan milli þeirra var jöfn eftir átján holur og þurfti því að grípa til bráðabana. Á fyrstu holu bráðabanans fengu þær báðar skolla. Báðar fengu þær svo par á annarri holu bráðabanans. Það var ekki fyrr en á þriðju holu bráðabanans sem úrslitin réðust. Perla Sól fór þá holu á pari á meðan að Elsa Maren fékk skolla. Perla Sól tryggði sér þar með sæti í undanúrslitunum. 

Undanúrslitin líta svona út: 

- Guðrún Brá Björgvinsdóttir vs. Perla Sól Sigurbrandsdóttir (Einvígi þeirra hefst klukkan átta í fyrramálið) 

- Heiða Rakel Rafnsdóttir vs. Fjóla Margrét Viðarsdóttir (Einvígi þeirra hefst korter yfir átta í fyrramálið) 

Sigurvegarar hvors einvígis fyrir sig mætast í úrslitaeinvígi mótsins á morgun.

Þurfti einnig bráðabana hjá körlunum

Þeir Veigar Heiðarsson (Golfklúbbur Akureyrar) og Birgir Björn Magnússon (Golfklúbbur Keilis) unnu sín einvígi í átta liða úrslitunum hjá körlunum nokkuð örugglega en leikið er á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbu Suðurnesja. 

Spennan var meiri í hinum tveimur einvígum átta liða úrslitanna. 

Aron Emil Gunnarsson (Golfklúbbur Selfoss) þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn Svanbergi Adda Stefánssyni (Golfklúbbur Keilis) en var þó yfir allar seinni níu holurnar en þó með minnsta mun síðustu fjórar.  Aron sigldi þó heim sigri. 

Í einvígi Björns Viktors Viktorssonar (Golfklúbbur Leynis) og Guðmundar Ágústs Kristjánssonar (Golfklúbbur Reykjvíkur) þurfti bráðabana til að skera úr um hvor kylfingurinn færi í undanúrslit. 

Aðeins eins holu bráðabana þurfti þar til því að fyrstu holuna fór Björn Viktor á skolla en Guðmundur Ágúst á gullfallegum fugli og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitunum á morgun. 

Undanúrslitin líta svona út:

- Guðmundur Ágúst Kristjánsson vs. Aron Emil Gunnarsson (Einvígi þeirra hefst klukkan átta í fyrramálið) 

- Birgir Björn Magnússon vs. Veigar Heiðarsson (Einvígi þeirra hefst klukkan korter yfir átta í fyrramálið) 

Úrslitaeinvígið fer síðan fram seinna sama dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×