Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Andri Broddason skrifar 2. júlí 2026 17:33 Lewis Hamilton sagði að hann og fleiri ökumenn hafa áhyggjur að rafmagnsmótorinn verði batteríslaus á miðjum hring. Mario Renzi /Formula 1 via Getty Images Lewis Hamilton segir að það verði allt öðruvísi að keyra Silverstone-brautina í Bretlandi í bílum þessarar kynslóðar. Kvartanir ökumanna yfir bílunum virðast ætla að ná hámarki í breska kappakstrinum um helgina.
Breski kappaksturinn er þekktur fyrir að vera með mikið af hröðum beinum köflum ásamt löngum hröðum beygjum. Lítið er því um stóra bremsupunkta sem gefur rafmagnsmótornum í bílunum tíma til að hlaða. Ökumenn eru hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring. Vélinni í Formúlu 1-bílunum í ár er skipt í tvennt þar sem einn helmingur er hefðbundinn bensínmótor en hinn helmingurinn rafmagnsmótor. Ökumenn búast við að þurfa að keyra hluta brautarinnar einungis á bensínmótornum þar sem bíllinn mun eiga í erfiðleikum með að hlaða batteríin. Hamilton segir að ökumenn hafi spjallað sín á milli og talað um hvað það verði erfitt að keyra á Silverstone-brautinni í Bretlandi. „Brautin verður allt öðruvísi. Vonandi munum við geta notið þess að keyra hröðu beygjurnar með fullu afli. Ég vona að það verði lagað fyrir næsta ár.“ Sigurvegari austurríska kappaksturisins síðustu helgi, George Russell, segir að kappaksturinn geti orðið skemmtilegur þrátt fyrir að bílarnir hafi minna afl. „Kappaksturinn gæti verið áhugaverður. Ég held að 95 prósent áhorfenda taki ekki eftir því að bílarnir séu með minna afl. Þú tekur bara eftir því þegar þú horfir á kappaksturinn innan úr bílnum.“ Stjórnendur Formúlu 1 hafa tekið ákvörðun um að breyta hlutföllum milli bensíns og rafmagns í vélinni fyrir næstu tímabil. Það á vonandi að laga þessi vandamál með kraftminni bílum.
Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Fyrsti sigur Russell frá því í fyrstu keppni tímabilsins Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Allt í bál og brand í Formúlu 1 Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Sjá meira