Golf

„Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Fyrsti dagur Íslandsmótsins í golfi fór fram í mikilli rigningu.
Fyrsti dagur Íslandsmótsins í golfi fór fram í mikilli rigningu. gsí

Nánast stanslaust rigndi fyrsta keppnisdaginn á Íslandsmótinu í golfi og víða voru pollar á Korpúlfsstaðavellinum. Vallarstjóri segir völlinn vera að taka betur við sér í dag, á öðrum degi mótsins. Veðurhorfur eru fínar fyrir helgina.

„Þegar við mættum í gærmorgun leist okkur nú ekki á blikuna,“ sagði Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu í samtali við Vísi.

Hann útskýrði að mikill þurrkur síðustu daga fyrir mót hafi gert það að verkum, þegar byrjaði að hellirigna í gær, að grasið hefði tekið illa við vatninu. Grasið hefði verið orðið svo þurrt og herpt að pollar hefðu myndast ofan á því.

Hólmar Freyr Christiansson, vallarstjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, á góðviðrisdegi. GR

„Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt. En ég hafði ís í maganum og talaði við mótsstjórn, sagði þeim að þetta myndi sennilega lagast þegar líða færi á daginn og sem betur fer stóðst það. Völlurinn er skárri núna, hann tekur betur við vatninu og það eru færri pollar í dag en í gær. Þetta fer allt í rétta átt.“

Lengdarmæling í hellidembu.gsí

Þolinmæði og smá vatnsblástur

Hólmar segir þolinmæðina að mestu leiti hafa leyst þessa þraut en sums staðar þurfti að grípa til aðgerða. Vellinum var líka aðeins breytt fyrir daginn í dag, teigar sem höfðu verið lengdir voru styttir aftur til að flýta leiknum sem gengur hægar í rigningu.

„Á einhverjum stöðum höfum við þurft að blása vatninu burt eða ýta því… Á einhverjum stöðum höfum við þurft að færa teiga framar í dag, einfaldlega því leiktíminn er svo lítill. Við gerðum það bara til að hraða leiknum aðeins, breyttum aðeins uppsetningu vallarins.“

Kylfingur GKG á fyrsta degi Íslandsmótsins. gsí

Fín veðurspá fyrir helgina

Eftir erfiða byrjun á Íslandsmótinu hefur völlurinn tekið vel við sér og veðurspáin lítur vel út fyrir helgina að sögn Hólmars.

„Ef allar spár ganga eftir, og ég held að ég sé búinn að skoða allar veðurspár sem heimurinn býður upp á, þá ættum við að vera í þurrki á morgun og hinn. Það er vindur með rigningunni í dag og þó það herðist aðeins á henni seinni partinn er hún ekki jafn mikil og í gær. Ég held að við séum í ágætis málum heilt yfir fyrir helgina.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×