Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. ágúst 2026 14:35 Kattakaffihúsið hefur komið um 170 köttum í fóstur í gegnum árin. Samsett Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur.
Frá þessu er greint á Facebook-síðu kaffihússins en þar þakka starfsfólk og kettir kaffihússins viðskiptavinum sínum fyrir stundirnar í gegnum árin. „Við erum svo þakklát öllum okkar fastagestum sem hafa orðið vinir okkar í gegnum árin og fyrir að hafa fóstrað og elskað meira en 170 ketti,“ segir í færslunni. „Dyrnar verða opnar til 23. ágúst þannig að endilega komið við til að fá síðasta knúsið og kaffibollann og til að kveðja.“ Kaffihúsið var opnað þann 1. mars árið 2018 en eigendur og stofnendur þess, Ragnheiður Birgisdóttir og Gígja Sara Björnsson, heyrðu af kattakaffihúsum erlendis og langaði að skapa slíkan stað á Íslandi. Þar dvelja kettir í heimilisleit og viðskiptavinir geta fengið sér kaffibolla og heimsótt kettina í leiðinni. „Okkar markmið er að skapa hlýlegt og notalegt umhverfi þar sem fólk getur slakað á, gætt sér á góðum veitingum og hitt kisurnar okkar. Við viljum að kisunum líði vel á meðan þær leita að framtíðarheimili og velferð þeirra er höfð að leiðarljósi á kaffihúsinu,“ segir á heimasíðu Kattakaffihússins. Hvað varðar kettina sem dvelja enn á kaffihúsinu sé enn verið að leita að þeirra framtíðarheimilum og allir sem vilja leggja hönd á plóg sé bent á styrktarsíðu Kattakaffihússins. „Þar sem þeir eru svo ómótstæðilega sætir og góðir erum við fullviss um að þeir muni finna ástríkar fjölskyldur á næstunni,“ segir í færslunni.
Dýr Reykjavík Veitingastaðir Gæludýr Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira