„Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Andri Broddason skrifar 20. ágúst 2026 15:20 Max Verstappen ætlar að klára ferilinn sinn hjá Red Bull Beata Zawrzel/NurPhoto via Getty Images Í morgun var tilkynnt að Max Verstappen hefði framlengt samning sinn við Red Bull í Formúlu 1. Á blaðamannafundi eftir tilkynninguna sagði Verstappen að hann hefði frekar hætt frekar en að skipta um lið.
Max Verstappen hefur hugsað mikið um framtíðina sína á þessu tímabili þar sem hann er ósammála vegferðinni sem nútíma Formúlu 1 bílar eru að fara. Einnig hefur Red Bull bíllinn ekki verið jafn hraður og oft áður sem getur tekið á. Fyrri samningur Verstappen var í gildi til ársins 2028 en nýr samningur bætti við tveimur árum í viðbót. Verstappen er því samningsbundinn Red Bull til ársins 2030. Nýjar vélar ekki slegið í gegn Í byrjun tímabils voru settar nýjar vélar í Formúlu 1-bílana þar sem rafmagnsmótor skilaði meiri krafti en hinn hefðbundni bensínmótor í bílnum. Það skilaði því að oft kláraðist rafmagnið í bílunum og lítill kraftur var eftir í bílunum. Stjórn Formúlu 1 er að vinna í að breyta reglunum svo bílarnir missi ekki nær allan kraft á hröðustu köflum brautarinnar. Í byrjun tímabils vildi Verstappen ekki tala um framtíð sína þar sem hann var ekki sjálfur viss hvað hann vildi gera. Hann komst þó loks að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að hann vilji halda áfram. „Ég er ekki rosalega ánægður með Formúlu 1-bílinn eins og hann er núna. En ég elska enn kappakstur og þetta er enn Formúlu 1-bíll.“ Ætlar að klára ferilinn hjá Red Bull Við þessa niðurstöðu vaknaði spurningin hvort hann ætlaði að halda áfram hjá Red Bull eða verða hluti af öðru liði. Mercedes hefur lengi sýnt mikinn áhuga á að fá Verstappen til sín og hans helsti samstarfsmaður hjá Red Bull, Gianpiero Lambiase, er á leiðinni til McLaren. En á endanum var ákvörðunin að halda áfram hjá Red Bull. „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið. Red Bull leyfir mér að gera aðra hluti utan Formúlu 1 sem er stór plús.“ Max Verstappen hefur verið hluti af Red Bull-liðinu síðan árið 2014 og hjálpaði liðið honum að fá sæti í Formúlu 1. Markmið hans er og hefur verið að klára ferilinn sinn hjá Red Bull.
Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira