50+: Svefnherbergisskilnaður Rakel Sveinsdóttir skrifar 13. september 2026 20:01 Á miðjum aldri getur ástarhreiðrið sem rúmið var, breyst í vígvöll lífeðlisfræðinnar. Hrotur, hitakóf, fótapirringur, salernisferðir: Kannist þið við þetta? Svefnherbergisskilnaður gæti verið besta ráðið fyrir hjónabandið. Vísir/Getty Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu?
Því já; í dag ætlum við að leyfa okkur að ræða eitt atriði sem þó er svo algengt. Hvernig hægt er að bregðast við pirringi eða leiðindum vegna þess að annar aðilinn hrýtur svo mikið á meðan hinn getur ekki sofið? Við ætlum ekkert að ræða orsakir þess að hrjóta. Látum aðra sérfræðinga um það. En við ætlum að leyfa okkur að ræða eina leið til að styrkja hjónaband í þessari stöðu og það er það sem hljómar kannski neikvætt en gæti verið hið besta mál: Að hætta að sofa í sama herbergi. Þetta þarf svo sem ekkert endilega að tengjast hrotum. Sumir kvarta til dæmis yfir erfiðleikum þegar breytingaskeið eiginkonunnar kallar á alls kyns kulda og hitastig eða rúmbyltingar að leit er að öðru eins. Já, það sem eitt sinn var griðastaður ástarinnar (hjónarúmið) getur allt í einu farið að breytast í vígvöll lífeðlisfræðinnar. Þar sem alls kyns hlutir fara að gerast. Allt frá því að annar aðilinn hrjóti eins og keðjusög yfir í hitakóf sem gæti hitað upp meðalstórt einbýlishús á Selfossi. Fleiri atriði má líka nefna. Til dæmis eirðarlausa fætur, verki í mjöðmum og næturferðir á salernið sem stundum minna á göngutúra í miðbænum á Menningarnótt. Dauðadómur eða björgunarhringur? Lengst af hefur ríkt mikil skömm í kringum þá hugmynd að sofa ekki saman. Ef fólk svaf hvort í sínu herberginu var gengið út frá því að hjónabandið væri komið á endastöð. Svefnsófinn var tákn um refsingu eða ósætti. En nú er að eiga sér stað hljóðlát (og miklu úthvíldari) bylting. Sífellt fleiri pör velja það sem á ensku er kallað „sleep divorce“ eða svefnherbergisskilnaður. Og þetta er enginn jaðarhópur. Samkvæmt könnunum bandarísku svefnsamtakanna (American Academy of Sleep Medicine) segist yfir þriðjungur fólks sofa reglulega eða stundum í öðru herbergi til að tryggja eigin nætursvefn. Þá sýna greiningar frá Sleep Foundation að meirihluti þeirra sem prófa að sofa hvor í sínu lagi upplifir betri svefngæði og minni pirring í daglegu lífi. Málið snýst nefnilega ekki um að skilja við makann. Þetta snýst um að skilja við hrotur, sparkandi fætur og óróa. Þessu tengt vilja líka margir meina að það að flytja sig um set og hætta að sofa í sama herbergi geti verið leið til að bæta kynlífið. Því andrúmsloftið á milli para verður einfaldlega léttara; pirringurinn dvínar. Að ræða málin og hugsa í lausnum getur alltaf skilað einhverju góðu. Þótt það þýði breytingar eða að hugsa út fyrir boxið. Hvað er svo sem óspennandi við það að kveðjast með kossi á kvöldin og segja: „Ég elska þig – sjáumst í fyrramálið.“
50+ Tengdar fréttir Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Lífið færir okkur áskoranir í litlum og stórum myndum. Ein þeirra er skilnaður. 10. júlí 2026 07:02 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34 Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Við tölum oft um siðblindu frekar en að þekkja hana. Segjum að þessi sé siðblindur eða hinn. Eða notum þetta sem lýsingarorð yfir karakter í kvikmynd. Sem er gjörsamlega siðblindur. 24. júní 2026 07:00 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00 Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fleiri fréttir 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Sjá meira
Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Lífið færir okkur áskoranir í litlum og stórum myndum. Ein þeirra er skilnaður. 10. júlí 2026 07:02
50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34
Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Við tölum oft um siðblindu frekar en að þekkja hana. Segjum að þessi sé siðblindur eða hinn. Eða notum þetta sem lýsingarorð yfir karakter í kvikmynd. Sem er gjörsamlega siðblindur. 24. júní 2026 07:00
50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00