„Fannst við bara baka þá“ Árni Gísli Magnússon skrifar 6. september 2026 17:46 Sigurður Heiðar Höskuldsson var ánægður með mikilvægan sigur. Vísir / Hulda Margrét Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var mjög ánægður með frammistöðuna og stigin þrjú þegar Þór vann mikilvægan 1-0 sigur gegn FH á VÍS vellinum í síðustu umferð Bestu deildar karla fyrir skiptingu.
Hverju áttu þessum sigri að þakka? „Bara stórkostlegri frammistöðu, vorum bara miklu betri hérna allan leikinn. Þvílík orka í okkur, pressan og hugarfarið í þessum leik var bara frábært. Svekkjandi að klár ekki fleiri sóknir hérna með marki og vinna þetta stærra því mér fannst við bara baka þá sko.“ Í viðtali fyrir leik talaði Sigurður um að sóknarleikur liðsins þyrfti að vera betri sem varð svo sannarlega raunin. „Já já, bara mjög flottir. Leikplanið við skiluðum því frábærlega frá okkur, hittum á það og leikmennirnir stóðu sig frábærlega. Allir sem koma að þessum leik stóðu sig hrikalega vel þannig við erum bara mjög ánægðir með þetta en þrjú stig og nú byrjar úrslitakeppnin, þetta gefur okkur einhverja orku inn í hana. Tveir sigrar í röð og tvö hrein lök þannig við erum bara ótrúlega einhvern veginn ánægðir með okkur í dag en við þurfum að fara niður á jörðina strax á morgun og gíra okkur í næstu leiki, það er klárt.“ Allir leikir bikarúrslitaleikir Þórsarar eru í 10. sæti deildarinnar eftir 22. umferðir en nú skiptist deildin upp í eftir og neðri hluta þar sem fimm leikir eru framundan. „Ég bara spenntur fyrir henni, mikið af jöfnum liðum, mikið af svipuðum liðum, þannig að hvern einn og einasti leikur verður bikarúrslitaleikur. Þetta er mjög þéttur pakki og einhvern veginn öll liðin geta unnið öll þannig við þurfum bara að halda í þetta hugarfar sem er búið að vera, þessa stemningu sem er búið að kveikja í okkur núna síðustu tvær vikur og þá bara er ég gríðarlega spenntur fyrir síðustu leikjunum“. „Hvernig við einhvern veginn í þessum leik tókum ekkert af bensíngjöfinni, við bara héldum áfram að stíga upp. Við höfum verið að skora og falla niður en orkustigið og lífið í leikmönnunum það hélt FH-ingunum bara hérna á sínum eigin vallarhelmingi nánast allan seinni hálfleikinn og mér fannst þetta bara hrikalega vel gert hjá strákunum. Þetta þurfum við að taka inn og vitum það að þetta það sem kostar okkur að vinna leiki í þessari deild og ég er bara spenntur.“ Frábær Þorri Þorri Ingólfsson skoraði sigurmarkið í dag. Hann er einungis 17 ára gamall og kom á láni til Þórs frá Víkingi í sumarglugganum og hefur spilað virkilega vel.Er Sigurður búinn að fá meira frá honum en hann bjóst við upphaflega? „Veit það ekki. Ég fylgdist með honum í vetur og sá hann spila og fannst hann bara líta fyrir að vera bara hrikalega flottur strákur. Búinn að sjá líka landsleiki, hann er búinn að spila landsleiki með strákunum sem eru hér.“ „Já að einhverju leyti, ég þekkti hann náttúrulega ekki persónulega en bara sem karakter og týpa er hann náttúrulega bara geggjaður. Síðustu tvær vikur hefur hann bara verið einn af bestu mönnunum á æfingu þannig þetta var einhvern veginn svona í takt við það þannig að bara gríðarlega ánægður með hann. Góður í varnarleik, góður taktískt, klókur leikmaður þannig að ég er bara gríðarlega ánægður með hann og hrikalega spennandi tímar framundan hjá honum í þessum bolta.“ Yann Affi byrjaði tímabilið ekki vel og var auk þess setur utan hóps á tímabili vegna áreksturs innan hópsins en hann hefur stigið gríðarlega upp undanfarið. „Gríðarlega öflugur síðustu leiki. Búinn að vera svona smá tæpur líka þannig bara frábær frammistaða í dag. Hann fékk hjálp frá þeim spænska [Kevin Vazquez] þarna fyrir framan sig sem skilaði einhverri frammistöðu sem er langt síðan ég hef séð“, sagði Sigurður að endingu.
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Sjá meira