„Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Valur Páll Eiríksson skrifar 13. september 2026 17:06 Óskar Hrafn segir markvörðinn Arnar Frey vera að skrifa fótboltasöguna. vísir/Hulda Margrét Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með öruggan 5-1 sigur sinna manna á ÍA í Bestu deild karla í fótbolta í dag. KR svaraði fyrir slæmt tap á Skaganum síðustu helgi.
ÍA vann öruggan 3-1 sigur á KR á Akranesi fyrir viku síðan í síðasta leik liðanna fyrir uppskiptingu deildarinnar. Það var vart að sjá að sömu tvö lið væru að mætast í dag. „Ég held að þú áttir þig alveg á því að þetta eru tvær ólíkar íþróttir, að spila og grasi og gervigrasi. Því miður höfum við ekki náð nægilega góðum tökum á því að spila á náttúrulegu grasi á Íslandi. Því hefur stigasöfnunin verið heldur rýr í þessum þremur leikjum sem við höfum spilað,“ „En þetta var frábær leikur í dag, skemmtilegur, og ég er virkilega ánægður með frammistöðuna hjá liðinu,“ segir Óskar Hrafn. Galdur Guðmundsson kom KR yfir snemma leiks og Vesturbæingar voru komnir með 3-0 forystu eftir rúmlega tuttugu mínútna leik. Sigur þeirra var aldrei í hættu. KR-ingar byrjuðu leikinn því af miklum krafti. „Við gerðum það. Menn fundu það hjá sér að það þurfti að svara fyrir þessa frammistöðu uppi á Skaga. Ég held að menn hafi gert það frá fyrstu mínútu. Þetta var virkilega sterkt og heilt yfir mjög fínn leikur. Skaginn er gott lið sem mun alltaf eiga sín augnablik í leikjum. Það er enginn að fara að keyra yfir Akranes í 90 mínútur og svo var bara geggjað að sjá Arnar Frey skrifa nýjan kafla í markvarðarsögu fótboltans.“ Hvernig þá? „Ég held að það sjái það þeir sem vilja að staðsetningarnar hans í uppspilinu okkar er eitthvað sem mann fá ekki að venjast með markmenn. Ég er hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað þegar hann var kominn 15 metra inn á vallarhelming Skagamanna,“ segir Óskar Hrafn um markvörðinn Arnar Frey Ólafsson sem fór oftar en einu sinni með boltann yfir á vallarhelming Skagamanna og var nánast eins og bakvörður á tímabili. Óskar Hrafn vísar þarna til samræðna hans og Harðar Magnússonar í útsendingu RÚV frá bikarleik KR og Vals í upphafi móts. Þeir áttu þar orðaskipti um hlutverk Arnars Freys og stöður hans framarlega á vellinum í KR-liðinu. „Dóri (Halldór Snær Georgsson, hinn markvörður KR) var búinn að standa sig vel og vera flottur en við vorum búnir að vera án Arnars allt tímabilið. Ég held að þessi leikur sýni hvers við höfum saknað og hvers íslenskur fótbolti hefur í raun og veru saknað því hann er auðvitað bara skemmtikraftur.“ Talandi um skemmtikrafta, þið bættuð markamet í efstu deild. Er bara partý í Vesturbæ? „Það er auðvitað bara gaman, það er gaman að skora mörk og gaman að sjá liðið sitt að skora mörk og gaman fyrir stuðningsmenn að sjá liðið sitt skora mörk. Það er bara frábært. Við erum að bæta markamet hjá feykisterku Víkingsliði 2023 sem ég var að reyna að elta með Breiðabliki og gat alls ekki náð með nokkrum hætti. Það er bara flott og núna er næsta verkefni að ná að spila svona aggressívan sóknarleik en samt ekki fá á okkur tvö mörk að meðaltali í leik. Ég er ekki að segja að það verði auðvelt eða sé sjálfgefið en það er eitthvað sem við þurfum að sækja að,“ segir Óskar Hrafn en KR bætti í dag markamet Víkings frá 2023, líkt og hann segir. Víkingur skoraði 76 mörk sumarið 2023 en KR-ingar hafa skorað 79 mörk og það með fjóra leiki eftir.
KR Besta deild karla Íslenski boltinn ÍA Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira