„Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 14. september 2026 21:31 Róbert Orri Þorkelsson skoraði gott mark í dag. Hann hyggst nýta tækifærið sem hann fær í vörninni næstu vikur. Mynd/Víkingur Róbert Orri Þorkelsson átti góðan leik í hjarta varnar Víkings þegar liðið vann sannfærandi 4-1 sigur á Keflavík í Fossvoginum. Hann kórónaði frammistöðuna með stórglæsilegu marki í fyrri hálfleik. „
Þetta var virkilega flott hjá okkur í dag. Leiðinlegt hins vegar að fá á okkur þetta mark en mér fannst þetta mjög heilsteypt frammistaða. Við gerðum bara mjög vel í dag,“ sagði Róbert eftir leik. „Beint af æfingasvæðinu“ Róbert skoraði annað mark Víkinga með þrumuskoti í slána og inn eftir útfært horn. Markið var engin tilviljun. „Þetta var í rauninni bara beint af æfingasvæðinu. Við æfðum þetta í gær og fórum svona létt yfir þetta. Það var nú ekki flóknara en það.“ Róbert byrjaði við hlið Olivers Ekroth í miðri vörninni og nýtti tækifærið vel. Tímabilið hefur þó ekki verið einfalt fyrir hann persónulega. „Þetta er búið að vera erfitt fyrir mig. Ég hef verið mikið meiddur, eins og kannski oft áður, þannig að það er mjög mikilvægt fyrir mig að fá þessa síðustu leiki.“ Samkeppnin um stöðu miðvarðar hefur sömuleiðis verið mikil hjá Víkingum. „Við höfum verið með fjóra mjög góða miðverði að mínu viti þannig að samkeppnin er erfið. Maður verður bara að taka henni. Ég er mjög ánægður með að fá þessa síðustu leiki og ætla að reyna að grípa tækifærið vel.“ „Get ekki beðið“ Víkingar færast nær takmarkinu með hverjum leik og næsta verkefni er stórleikur gegn KR í Frostaskjólinu. „Það verður bara hrikalega skemmtilegur leikur og maður getur ekki beðið eftir honum. Það verður gaman að mæta í Frostaskjólið og, ef mér skjátlast ekki, mögulega geta klárað þetta þar. Það væri skemmtilegt.“
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira