Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Agnar Már Másson skrifar 19. september 2026 10:23 Wolt er í eigu DoorDash. Vísir Wolt á Íslandi tvöfaldaði tekjur sínar í fyrra en fyrirtækið á nú í kjaradeilu við sendla sem lýsa skertum launakjörum. Félagið skilaði rúmlega hundrað milljóna króna hagnaði í fyrra.
Tekjur Wolt á Íslandi (Wolt Enterprises Iceland ehf.) árið 2025 námu 1,2 milljörðum króna, sem er rétt tæplega tvöföldun frá 2024 þegar tekjurnar voru alls um 631 milljón króna. Hagnaður félagsins á árinu nam 107 milljónum króna í fyrra, en árið áður hafði félagið skilað 29 milljóna króna tapi. Greint var frá því á miðvikudaginn þegar sextíu Wolt-sendlar á Íslandi lögðu niður störf og sögðu að Wolt hefði skert laun sendla. Þessu hafa talsmenn Wolt hafnað. Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ sagði við Vísi í vikunni að verkalýðsfélög hefðu ítrekað reynt að ná samkomulagi við Wolt um að gerður yrði kjarasamningur við starfsmenn en því hefði verið hafnað. Kostnaður við seldar vörur jókst um 65 prósent Meðalfjöldi stöðugilda Wolt á Íslandi yfir árið jókst um tíu milli ára og voru samkvæmt ársreikningi 34 árið 2025. Félagið greiddi alls 221 milljón í laun og um 56 milljónir í annan starfsmannakostnað. Launatengdur kostnaður jókst því um þrjátíu prósent á milli ára. Kostnaðarverð seldra vara jókst um 65 prósent milli ára og var 360 milljónir króna árið 2025. Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður nam 52 milljónum. Annar kostnaður var að miklu leyti á pari við fyrra ár; afskriftir námu um 6 milljóna króna tapi og annar rekstrarkostnaður nam um 172 milljónum. Rekstrarhagnaður nam því 372 milljónum króna. Ekki er ljóst hvað skýrir 237 milljóna króna gengistap sem bókfært er hjá fyrirtækinu árið 2025, en það var aðeins 14,3 milljónir króna árið 2024. Handbært fé í lok árs 2025 var 327,5 milljónir króna, samanborið við 190,5 m.kr. árið áður. Eigið fé félagsins er þá ekki lengur neikvætt en í árslok nam það 77,7 milljónum króna. Móðurfélagið skilar tapi ár eftir ár Stjórnin bókar að markaðurinn fyrir matarsendingar á Íslandi sé að verða þroskaðri, en telur áfram vaxtarmöguleika í matvöru, smásölu, öðrum „on-demand“ sendingum, stækkun afhendingarsvæða og fleiri söluaðilum. Félagið er að öllu leyti í eigu finnska félagsins Wolt Oy, en það er í eigu bandaríska heimsendingarisans DoorDash sem stendur að miklu leyti undir fjármögnun á stækkun félagsins. DoorDash er skráð í bandarísku kauphöllina. Finnska móðurfélagið hefur þó ítrekað skilað tapi síðustu fimm ár; rekstrartap Wolt Oy nam 643 milljónum evra (89 ma.kr.) árið 2025 að því er Helsingin Sanomat greinir frá. Viðskipti Wolt á Íslandi við móður- og systurfélög námu 327,7 milljónum króna í fyrra.
Heimsendingarþjónusta Kjaramál Mest lesið Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Sjá meira