Formúla 1

Segir Horner vera að trufla Ferrari

Andri Broddason skrifar
Frederick Vesseur vill ekki hafa Christian Horner nálægt Ferrari-liði sínu.
Frederick Vesseur vill ekki hafa Christian Horner nálægt Ferrari-liði sínu. Samsett/Getty

Frederic Vasseur liðsstjóri Ferrari segir að Christian Horner sé að trufla liðið með því að biðja það um vinnu. Það virðist vera rétt hjá Vasseur þar sem gengi Ferrari hefur ekki verið gott í síðustu keppnum.

Christian Horner var látinn fara sem liðsstjóri Red Bull árið 2025 eftir að starfsmaður liðsins ásakaði hann um kynferðislega áreitni. Hann sagði í viðtali við Times í vikunni að draumur hans væri að vinna hjá Ferrari.

Fjölmiðlar hafa fjallað mikið um málið erlendis og velta fyrir sér hvort að Horner gæti snúið aftur í heim Formúlu 1. Vasseur var ekki ánægður með orðrómana og samkvæmt BBC Sport þá sagði hann eftir kappaksturinn í Aserbaísjan að liðið væri ekki að smella nógu vel saman.

„Við erum að berjast um þriðja sætið í heimsmeistaramótinu en í enda dags eru allir að tala um þetta. Meira að segja mennirnir í bílskúrnum sem smíða bílana eru að ræða um þetta. Þetta er besta umræðuefnið sem þeir hafa,“ sagði Vesseur og er greinilega ekki skemmt yfir þessum orðrómum.

Vesseur tekur þó skýrt fram að hann telji ekki að Horner eigi heima í Formúlu 1 lengur eftir ásakanir í hans garð sem létu hann missa vinnuna hjá Red Bull. Þrátt fyrir það hefur stigasöfnun Ferrari ekki verið nógu góð en síðan sumarfríið var hefur liðið aðeins fengið 62 stig. Til samanburðar hefur Mercedes fengið 146 stig á sama tíma.

Bíll Ferrari-liðsins er hraður í beygjum en vél bílsins gefur honum ekki nógu mikinn kraft. Það gerir það að verkum að á beinum köflum situr Ferrari-bíllinn eftir og nær ekki að halda í við hina. Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton trúir þó enn á liðsfélaga sína og sagði eftir keppnina að liðið væri á réttri leið og að það væru bjartari tímar framundan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×