Formúla 1

Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kapp­akstur

Andri Broddason skrifar
Valtteri Bottas lét sér fátt um finnast og hjólaði frá Malasíu til singapúr á fjórum dögum milli keppna.
Valtteri Bottas lét sér fátt um finnast og hjólaði frá Malasíu til singapúr á fjórum dögum milli keppna. Dom Gibbons /Getty Images

Valtteri Bottas, ökumaður Cadillac, fékk þá frábæru hugmynd að hjóla eftir kappaksturinn í Malasíu í Formúlu 1 til Singapúr þar sem næsti kappakstur verður um helgina. Hann hefur nú lokið ferð sinni og er mættur í tæka tíð fyrir kappaksturinn í Singapúr.

Lið hans Bottas, Cadillac, er enn stigalaust enda er þetta fyrsta tímabil liðsins í Formúlu 1. Það er því skiljanlegt að liðið sé á afturfótunum að venjast því að keppa með hröðustu bílum heims og geta mætt öðrum liðum í þeirri keppni.

Samhliða því að keppa í Formúlu 1 hefur hann fengið áhuga á því að hjóla og stundar hann það oft með eiginkonu sinni Tiffany Cromwell. Hún hefur keppt á Ólympíuleikunum í hjólreiðum og spilar líklegast einhvern þátt í hjóladellunni sem Bottas hefur fengið.

Bottas var fjóra daga að hjóla þá rétt tæpu 420 kílómetra sem hann fór milli Sepang í Malasíu og Singapúr. Hann hefur deilt nokkrum myndum af ferðalögum sínum og sést að hann þarf oft að hjóla í gegnum grýttan jarðveg og hjólaði hann stóran hluta af því í kolniðamyrkri.

Hann komst þó á leiðarenda án þess að lenda í veseni og er klár í slaginn fyrir kappaksturinn í Singapúr. Sá kappakstur er þekktur fyrir að vera einn sá erfiðasti á dagatalinu þar sem ökumenn fá litla pásu og þurfa að keppa í miklum hita og raka sem er í Singapúr.

Bottas þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af því þar sem hann hlýtur að vera þaulvanur rakastiginu eftir hjólreiðarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×