Íslenski boltinn

Tumi Fannar mættur á Hlíðar­enda

Sindri Sverrisson skrifar
Tumi Fannar Gunnarsson er mættur í Valstreyjuna.
Tumi Fannar Gunnarsson er mættur í Valstreyjuna. Valur

Miðjumaðurinn Tumi Fannar Gunnarsson er genginn í raðir knattspyrnuliðs Vals og hefur skrifað undir samning sem gildir til næstu þriggja ára.

Tumi Fannar, sem er 21 árs gamall, var einum sigri frá því að komast upp í Bestu deildina með liði Fylkis í sumar. Fylkismenn töpuðu fyrir Þrótti á Laugardalsvelli í úrslitaleik um að fylgja Aftureldingu upp úr Lengjudeildinni.

Tumi Fannar mun engu að síður fara í Bestu deildina því hann er nú mættur á Hlíðarenda.

Í tilkynningu Vals segir að Tumi, sem sé uppalinn hjá Breiðabliki, hafi átt gott tímabil með Fylki í sumar og sýnt að hann sé klár í að taka næsta skref. Þá geti hann leyst margar stöður á vellinum.

Tumi Fannar er fyrsti leikmaðurinn sem Valsmenn tilkynna að komi til félagsins nú í haust áður en Halldór Árnason tekur svo við sem þjálfari eftir tímabilið. Í vikunni tilkynnti félagið jafnframt að búið væri að semja við markvörðinn Frederik Schram um að spila áfram með liðinu út tímabilið 2029.

Valsmenn sigla lygnan sjó í neðri hluta Bestu deildarinnar en þeir eru í 8. sæti með 27 stig, sjö stigum frá fallsæti þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir. Þeir eru stigi á eftir Stjörnunni í baráttu um 7. sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×