Formúla 1

Antonelli getur orðið yngsti heims­meistari sögunnar í næstu keppni

Andri Broddason skrifar
Kimi Antonelli hefur staðið sig frábærlega á tímabilinu.
Kimi Antonelli hefur staðið sig frábærlega á tímabilinu. Andrea Diodato/NurPhoto via Getty Images

Ungi Ítalinn Kimi Antonelli getur orðið heimsmeistari í Formúlu 1 í næstu keppni. Ef hann nær því þá verður hann yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1 og nær því á öðru tímabilinu sínu.

Kimi Antonelli gekk til liðs við Mercedes í Formúlu 1 eftir að Lewis Hamilton fór frá liðinu í Ferrari. Antonelli á möguleika á því að feta í fótspor hans með því að verða heimsmeistari á sínu öðru tímabili en það þarf mikið að gerast svo hann missi titilinn úr greipum sér.

Aðeins sex keppnir eru eftir á tímabilinu og eftir Singapúr-kappaksturinn um síðustu helgi er Antonelli kominn með 102 stiga forskot á liðsfélaga sinn George Russell í öðru sætinu. Lewis Hamilton er í þriðja sætinu rétt fyrir aftan Russell en hann er 111 stigum frá Antonelli.

Næsta keppni verður 25. október í Bandaríkjunum og á Antonelli möguleika á að verða heimsmeistari í þeirri keppni. Til þess að gera það þarf Antonelli að vinna keppnina, Russell má ekki enda ofar en í níunda sæti og Hamilton má ekki enda ofar en í fimmta sæti.

Ef Antonelli vinnur keppnina og George Russell endar níundi þá er Antonelli með 125 stiga forskot þegar 125 stig eru eftir í pottinum. Sigur í Bandaríkjunum væri níundi sigur Antonelli en Russell hefur bara unnið þrjár. Ef Russell myndi vinna þær fimm keppnir sem væru eftir væri hann bara búinn að vinna átta í heildina og því væri Antonelli heimsmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×