Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2026 20:19 Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var í stuði í kvöld. EPA/Johan Nilsson Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var í stuði í kvöld þegar Barcelona vann flottan sigur í Meistaradeildinni í handbolta. Börsungar hafa unnið fimm fyrstu leikina alveg eins og Íslendingaliðið Magdeburg.
Barcelona vann sex marka heimasigur á franska félaginu Montpellier, 40-34, eftir að hafa verið 20-18 yfir í hálfleik. Sergey Hernández byrjaði í marki Barcelona og fann sig ekki með aðeins 22 prósent markvörslu. Viktor Gisli kom inn, varði fyrsta skotið og kláraði leikinn með miklum glans. Viktor varði alls þrettán skot og var lengi með yfir 50 prósent markvörslu en endaði leikinn með því að verja 43 prósent þeirra skota sem komu á hann. Börsungar hafa unnið fimm fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni í vetur og eru í efsta sæti riðilsins. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru sparaðir í þriggja marka útisigri Magdeburg á norska félaginu Kolstad, 35-32. Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi skoruðu tvö mörk fyrir Magdeburg en Gisli komst ekki á blað. Philipp Weber var markahæstur með ellefu mörk og Lukas Mertens skoraði átta mörk. Magdeburg hefur líka unnið fimm fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni í vetur og er í efsta sæti riðilsins. Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki þegar Sporting vann nauman tveggja marka sigur á sænska liðinu Kristianstad, 42-40, þar sem sænska liðið fékk sautján mörk frá Íslendingunum sínum. Baldur Fritz Bjarnason átti frábæran leik fyrir Kristianstad en hann skoraði ellefu mörk úr þrettán skotum. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad, Ólafur Guðmundsson var með tvö mörk og Andri Erlingsson skoraði eitt mark.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Leik lokið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Leik lokið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira