Spænskir sjóliðar í Reykjavík
Þrjú spænsk herskip eru komin til Íslands vegna verkefnis Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi. Verkefninu er meðal annars ætlað að fylgjast með sæstrengjum, orkuinnviðum og mikilvægum siglingaleiðum. Yfirmaður verkefnisins, sem hóf ferilinn í kalda stríðinu, segir heiminn aftur orðinn flóknari en treystir NATO til að aðlagast eins og áður.