Crowley X Haukur Þór
Haukur Þór Valdimarson oftast kenndur við hljómsveitirnar Blóðmör og Forsmán situr ekki auðum höndum þessa dagana. Haukur hefur komið af stað tónleikaröð á Dillon sem einblínir á ný og uppkomandi rokkbönd, Grasrót verður allar helgar út sumarið. Haukur er einnig einn skipuleggjanda Andkristnihátíðarinnar sem verður haldinn í desember á vetrarsólstöðum. Hátíðin heldur 25 ára afmæli og það verður mikil þungarokksveisla !