
Settu bílslys á svið
Karlmaður hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að sviðsetja bílslys í Hafnarfirði árið 2021.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Karlmaður hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að sviðsetja bílslys í Hafnarfirði árið 2021.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur stórfellt fíkniefnamál til rannsóknar þar sem lagt hefur verið hald á tæplega þrjú kíló af MDMA-kristöllum og 1781 stykki af MDMA-töflum.
Karlmaður hefur hlotið þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að taka þrjár myndir af berum kynfærum og rassi barnungs drengs á meðan hann svaf og síðan sent konu myndirnar á samskiptamiðlinum WhatsApp.
Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni Hagstofunnar 750 þúsund krónur auk vaxta vegna uppsagnar hans frá stofnuninni árið 2015. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur.
Í dag hófst íbúakosning í Ölfusi um hvort Heidelberg Materials fái að reisa verksmiðju í Keflavík nálægt Þorlákshöfn eða ekki. Kosningu lýkur þann 9. desember.
Karlmanni á áttræðisaldri er gert að greiða hundrað þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna umferðarlagabrota og vopnalagabrots, en hann var sýknaður af ákæru um að ógna lífi og heilsu bóndahjóna með vítaverðum akstri.
Íslenska ríkinu hefur verið gert að greiða þrotabúi Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins, fjórtán milljónir króna vegna riftunar greiðslu félagsins á virðisaukaskatti.
Landsréttur hefur staðfest tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Kristni Eiðssyni og sviptingu á ökuréttindum til hálfs árs vegna manndráps af gáleysi. Honum var gefið að sök að hafa ekið strætisvagni sínum á konu sem hlaut bana af.
Jaguar Do, tvítugur karlmaður, hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar í Landsrétti. Hann var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, með því að stinga mann sem seldi honum „lélegt kókaín“.
Karlmaður hefur verið dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðislega áreitni gagnvart konu á salerni skemmtistaðar á Suðurlandi árið 2022.
Hæstiréttur Íslands hefur sýknað íslenska ríkið af nokkurra milljarða króna kröfu Reykjavíkurborgar í tengslum við framlög ríkisins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Karlmaður hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Suðurlands vegna kynferðisbrota gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var tólf til fjórtán ára gömul.
Dómur í umfangsmiklu skattalagabrotamáli á hendur þremur konum gekk í gær. Ein þeirra gat sýnt fram á að himinháar greiðslur frá spænskum auðjöfri hafi getað verið lán og var því sýknuð. Mæðgur gátu það hins vegar ekki og voru sektaðar um á sjönda tug milljóna.
Karlmaður sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði er talin hafa ráðist á konuna með hættulegu verkfæri, járnkarli eða rúllubaggateini.
Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun um útgáfu ákæru í Kiðjabergsmálinu svokallaða á næstu dögum, að sögn Karls Inga Vilbergssonar saksóknara. Málið varðar andlát manns sem lést í sumarbústað í Kiðjabergi á Suðurlandi í apríl á þessu ári.
Mál Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings á sjötugsaldri, hófst á nýjan leik í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hún var sýknuð af ákæru fyrir manndráp í opinberu starfi í fyrra, en sá dómur var ómerktur í Landsrétti í vor og því er málið tekið upp á ný í héraði.
Formaður Neytendasamtakanna segir það þingmönnum til ævarandi skammar að hafa samþykkt búvörulög, sem héraðsdómur dæmdi ólögmæt í morgun. Formaður atvinnuvegandefndar segist ósammála niðurstöðunni og væntir þess að málið fari fyrir öll þrjú dómsstig.
„Þetta er bara spillingarmál, sem varðar börnin okkar,“ segir faðir ungrar konu sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Landsréttur hefur nú staðfest sýknudóm yfir bænum í skaðabótamáli sem konan höfðaði.
Dómari við héraðsdóm Reykjavíkur hefur slegið því föstu að breytingarnar sem gerðar voru á búvörulögum í mars síðastliðnum hafi strítt gegn stjórnarskrá landsins og að breytingin hafi því ekkert gildi að lögum. Afurðastöðvar voru með breytingunum undanþegnar samkeppnislögum.
Barnabörn eins stofnenda Stálskipa og eiginkonu hans hafa fengið kæruleyfi til Hæstaréttar vegna ætlaðrar ofgreiðslu fyrirframgreidds arfs upp á milljarð króna. Bæði Héraðsdómur Reykjaness og Landsréttur töldu ákvæði erfðalaga staðið í vegi fyrir því að systkinum föður barnabarnanna yrði gert að endurgreiða fyrirframgreiddan arf sem þau fengu umfram bróður sinn.
Karlmaður hefur hlotið 45 daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að fremja líkamsárás og eignaspjöll á Selfossi í september 2022.
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur slegið því föstu að gríðarlega umdeild breyting á búvörulögum hafi strítt gegn stjórnarskrá og breytingin hafi því ekkert gildi að lögum.
Vinur læknis, sem stunginn var í Lundi í Kópavogi í sumar, er með réttarstöðu sakbornings vegna áfloga milli hans og árásarmannsins. Eftir að árásarmaðurinn flúði vettvang stökk vinurinn upp á rafhlaupahjól árásarmannsins og elti hann uppi.
Eiginkona læknis á sextugsaldri sem stunginn var fjórum sinnum í Lundi í Kópavogi í sumar var viss um að eiginmaður hennar myndi deyja eftir árásina. Árásarmaðurinn og öll sem urðu vitni að árásinni segja að soðið hafi upp úr vegna ágreinings um umferðarreglur á göngustígum.
Þrítugur karlmaður sem er ákærður fyrir að reyna að bana lækni í Lundi í Kópavogi í sumar, segist ekki hafa haft neinn ásetning til þess að stinga lækninn. Hann hafi gripið til hnífs og sveiflað í átt að lækninum í sjálfsvörn. Hann hafi verið með hníf sem hann keypti í Kolaportinu í vasanum af því að honum þætti hann „töff“.
Kona var í dag sýknuð í héraðsdómi Reykjaness. Hún var sökuð um að hafa fitað hund af tegundinni corgi á fóðurheimili.
Landsréttur hefur sýknað Persónuvernd af kröfu Íslenskrar erfðagreiningar sem varðaði vinnu fyrirtækisins þegar Covid-19 faraldurinn var nýkominn hingað til lands.
Listamaðurinn Odee Friðriksson segir að úrskurður dómara í Lundúnum um lögbann á notkun hans á ímynd Samherja hf. auki gildi listaverks hans. Þá segist hann vera að fara yfir næstu skref í málinu með lögmanni sínum.
Landsréttur hefur mildað fangelsisrefsingu Henrys Fleischer, 35 ára Dana, um eitt ár. Hann var upphaflega dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir aðkomu hans að skútumálinu svokallaða í fyrra.
Dómstóll í Lundunúm féllst í dag á allar kröfur Samherja hf., í máli sem félagið höfðaði á hendur listamanninum Odee Friðrikssyni vegna afsökunarbeiðni og vefsíðu sem hann setti upp í nafni Samherja.