Misskilin motta!? Nú fögnum við á nýju ári aftur Mottumars svokölluðum sem hefur að markmiði að ýta undir árvekni karla gegn krabbameini og einkennum þess. Þetta er frábært framtak og hefur lukkast í alla staði mjög vel undanfarin ár og hafa karlmenn látið sér vaxa skegg og þannig sýnt stuðning sinn í verki og aukinheldur safnað áheitum til stuðnings Krabbameinsfélaginu í rannsóknir, fræðslu og forvarnir. Fastir pennar 28. febrúar 2012 06:00
„Fleiri gerast nú vígamenn en eg ætlaði" Furðulegt hefur verið að fylgjast með atlögunni að Gunnari Andersen. Sigurður G. Guðjónsson, þjóðkunnur lögmaður alls konar manna sem Fjármálaeftirlitið hefur kært fyrir markaðsmisnotkun og skapandi bókhald gekk fram fyrir skjöldu og fann Gunnari allt til foráttu, enda hefur stofnunin verið öflug og rösk og afgreitt fjársvikamál með hraði til sérstaks saksóknara eftir að hafa verið værukærasta og umburðarlyndasta stofnun landsins um árabil. Árás Sigurðar G. Guðjónssonar á Gunnar er ekkert skrýtin; hann er bara að vinna sína vinnu, gæta hagsmuna þeirra manna sem hann er ráðinn til að sinna; hann er að tefja og þvæla og þæfa og þrugla málin með öllum meðulum; þannig gengur það fyrir sig réttarríkið og ekkert nema gott um það að segja því að sérhver grunaður eða ákærður maður hefur rétt á því að fá svo góða vörn sem kostur er. Fastir pennar 27. febrúar 2012 07:00
Assad kemst upp með fjöldamorð Þegar vel heppnuð hernaðaraðgerð Atlantshafsbandalagsins í Líbíu stuðlaði að falli harðstjórans Muammars Gaddafí töldu margir að orðið hefði til mikilvægt víti til varnaðar; aðrir harðstjórar í Arabaheiminum, sem murkuðu lífið úr eigin þegnum, yrðu ekki látnir komast upp með það. Fastir pennar 27. febrúar 2012 07:00
Sveindómssaga þaggar í þeim gamla Á leiðinni frá Priego til háskólans í Kordóbu kem ég venjulega við í þorpinu Cabra og tek þar upp í ungan mann sem einnig stundar nám við skólann. Með þessu móti má spara drjúganbensíneyri og svo gefst þarna gamla Bílddælingnum tækifæri til að segja ungum spanjóla sögur að vestan. Hann er reyndar um tvítugt en hefur aldrei á sinni lífsfæddri ævi heyrt af fólki eins og Ödda, Hannesi, Áka eða Agnari. Bakþankar 27. febrúar 2012 07:00
Hvalur og fíll Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, hélt eftirminnilegt erindi á Viðskiptaþingi á dögunum. Þar líkti hann íslensku krónunni, og áhrifum hennar, við fíl sem er í stofunni heima hjá fólki. Fastir pennar 25. febrúar 2012 19:57
Með skítinn upp að hárlínu Einu sinni var það regla frekar en undantekning að fólk ritaði skoðanir sínar á vefsíður undir dulnefni. Það voru ömurlegir tímar. Svo kom Facebook til sögunnar og kynnti sérstaka tengingu við vefsíður, sem gerir fólki kleift að nota aðgang sinn að samskiptasíðunni til að rita ummæli undir fullu nafni. Vissulega var það mikið framfaraskref, en þegar ummælakerfi fréttasíða eru skoðuð sést að þau eru lítið annað en sorglegur vitnisburður um tilraun sem mistókst. Bakþankar 25. febrúar 2012 06:00
Sorann úr hillunum! Ein af mikilvægustu ríkisstofnununum er Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins. Hún hefur ekki bara einkarétt á að selja okkur áfengar veigar, heldur passar hún líka að fólk fái ekki ranghugmyndir um leið og það neytir þeirra eða taki upp á einhverri vitleysu annarri en þeirri sem sjálfur vínandinn kemur inn hjá því. Fastir pennar 25. febrúar 2012 06:00
Bullhagfræði lýðskrumaranna Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, skrifaði rökfasta grein hér í blaðið í gær þar sem hann útskýrði í einföldu og auðskildu máli hvernig allar hugmyndir um almenna niðurfærslu skulda leiða til sömu eða svipaðrar niðurstöðu; að reikningurinn verði sendur skattgreiðendum og/eða lífeyrisþegum. Fastir pennar 24. febrúar 2012 06:00
Áfram eilífðarsmáblóm! Á öskudaginn kvað við nýjan tón þegar æska landsins þrammaði hásyngjandi fram hjá eldhúsglugganum hjá mér. Eða eiginlega eldgamlan. Ég átti von á Bjarnastaðabeljunum, þrautreyndum þjóðsöng öskudagsins síðan elstu menn og konur muna, nú eða kannski Krummi krunkar úti, Maístjörnunni, eða Stattu upp með Bláum ópal. En þetta var ekkert af opinberum tónlista þess eina dags ársins þegar börn fá hið dýrmæta tækifæri til að verða sér úti um sælgæti í sekkjavís með því að hefja upp raust sína og láta í sér heyra. Bakþankar 24. febrúar 2012 06:00
Þingið sem treysti sér ekki Stjórnarskrá Íslands verður ekki breytt nema með samþykki tveggja þinga með kosningum á milli. Það vald verður að óbreyttu ekki framselt annað. Né heldur er hægt að framselja ábyrgðina af því að vandað sé til verksins, þótt þingið kunni að langa til þess. Fastir pennar 24. febrúar 2012 06:00
Einhvern til að elska Ég hef aldrei kosið í alþingiskosningum. Hefur aldrei verið boðið upp á valkost sem ég felli mig við. Geri mér grein fyrir því að kosningarétturinn er mikils virði en finnst sú hugmynd að kjósa flokk, sem hefur alls kyns mál sem ég sætti mig ekki við á stefnuskránni, ógeðfelld. Það væri svona álíka og að deita mann sem ég væri ekkert skotin í, bara til að deita. Sú tilhugsun höfðar ekki til mín og ég sit heima. Tek ekki þátt í leitinni að þeim rétta. Bakþankar 23. febrúar 2012 06:00
Gullöld mannsins Við lifum lengsta frið frá stríðum stórvelda frá því stærri ríki tóku að myndast fyrir þúsundum ára. Það eru nær sjötíu ár frá því að stórveldum heimsins laust síðast saman í styrjöld. Milljónir hafa fallið vegna stríðsátaka á þessum tíma en heimurinn hefur ekki þurft að þola styrjaldir stórvelda um forustu í heiminum eða yfirráð á einstökum svæðum hans. Þessar fimmtíu aldir frá því Súmerar fóru að skrifa hluti hjá sér voru allar með öðrum hætti. Fastir pennar 23. febrúar 2012 06:00
Ótal tækifæri Sjö fyrirtæki sem eru beint eða óbeint, að hluta eða í heild í eigu Landsbankans verða skráð í Kauphöll Íslands á næstu misserum, eins og Fréttablaðið sagði frá í gær. Þá hefur Steinþór Pálsson, forstjóri bankans, sagt að hugsanlegt sé að bankinn sjálfur verði skráður á markað á þessu ári og þá væntanlega minnihluti í honum seldur. Fastir pennar 23. febrúar 2012 06:00
Ég þekki ekki stjórnarskrána Bessaleyfi skal tekið hér í upphafi pistilsins og það fullyrt að fyrir fimm árum hafi varla nokkur einasti ólöglærður Íslendingur þekkt innihald stjórnarskrár íslenska lýðveldisins. Jú mann rámar í að Ísland sé lýðveldi með þingbundinni stjórn en ekki meira en það. Og hvað þýðir þingbundin stjórn? Og hvar kemur forsetinn inn í þetta? Hvar er hann í þingbundnu stjórninni sem á að ráða? Sjálfur þjóðkjörinn höfðinginn? Bakþankar 22. febrúar 2012 06:00
Hvað næst? Flestir eru sammála um að tímabært sé að þjóðin eignist nýja og frumsamda stjórnarskrá. Sú sem staðið hefur lítið breytt frá stofnun lýðveldisins er, auk þess að vera gömul, aðlöguð útgáfa af þeirri stjórnarskrá sem gilti í Danmörku um miðjan fimmta áratug síðustu aldar. Fastir pennar 22. febrúar 2012 06:00
Forseti í feluleik Feluleikur Ólafs Ragnars Grímssonar forseta gagnvart fjölmiðlum, sem biðja um skýr svör um það hvort forsetinn hyggist bjóða sig fram á ný eða ekki, er gagnrýni verður og embætti forsetans sízt til sóma. Fastir pennar 21. febrúar 2012 09:39
Sísí slekkur í sinu Sögusviðið er Stöðvarfjörður haustið 1977. Þorpsbúar berjast við sinueld þriðja daginn í röð. Í þetta skiptið er tvísýnt hvort eldurinn nái að læsa sig í efstu húsin í þorpinu. Þeim fullorðnu er ekki skemmt en fyrir þeim yngri er þetta ævintýri, enda gera þeir sér ekki grein fyrir alvöru málsins. Þegar kvöldar tekst að ráða niðurlögum eldsins og allir ganga til síns heima. Það sem brennur á vörum allra er spurningin: Hver er það sem kveikir í? Bakþankar 21. febrúar 2012 06:00
Þið eruð næst Ég ímynda mér að heim til mín komi maður til þess að gera við þvottavélina hjá mér. Þetta er viðkunnanlegur maður og það er gaman að spjalla við hann. Hann klárar verkið með glæsibrag og sýnir mér hvernig þvottavélin virkar sem ný. Og ég segi: Þetta er alveg frábært hjá þér og svo var líka svo gaman að spjalla við þig. Veistu, ég er svo ánægður með þessa heimsókn þína að ég er hreinlega að hugsa um að borga þér fyrir verkið … Fastir pennar 20. febrúar 2012 08:00
Makríll = sexí Við skulum byrja á að leggja línurnar. Mak-ríll er ekki færeyskt orð yfir samfarir. Makríll er ekki orð sem þú vilt heyra frá kvensjúkdómalækninum. Makríll er fiskur (orð sem þú vilt reyndar heldur ekki heyra frá kvensjúkdómalækninum), hollur og góður fiskur sem langar að kynnast þér. Bakþankar 20. febrúar 2012 08:00
Baldur Hæstiréttur dæmdi á föstudag Baldur Guðlaugsson, fyrrum ráðuneytisstjóra, í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik. Baldur seldi hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir 192,6 milljónir króna 17. og 18. september 2008, þremur vikum fyrir fall bankans, þrátt fyrir að hann sæti í samráðshópi stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þess efnis að Baldur hafi í fimm tilgreindum tilvikum, frá 22. júlí til 16. september 2008 búið yfir innherjaupplýsingum um stöðu Landsbankans vegna setu sinnar í hópnum þegar hann seldi bréf sín. Fastir pennar 20. febrúar 2012 08:00
Ræður ríkissjóður við allar þessar niðurfærslur? Sigur réttlætisins, sögðu sumir eftir að dómur Hæstaréttar um vexti af gengistryggðum lánum féll í síðustu viku. Hagsmunasamtök heimilanna sögðu að stjórnvöld og fjármálastofnanir landsins hefðu beitt tugi þúsunda heimila efnahagslegu ofbeldi með verkum sínum. Hafa þau lagt fram kæru á næstum allar stjórnir og bankastjóra á árabilinu 2001 til 2012 fyrir að veita gengistryggð lán og innheimta með ólöglegum hætti. Fastir pennar 19. febrúar 2012 16:14
Áróðursmeistari kærleikans Undanfarið hefur töluvert verið rætt og ritað um það hvort trúfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar geri menn undanþegna landslögum um hatursáróður ef þeir geta fært rök fyrir því að mannhatrið sé trúarleg afstaða. Minna hefur verið rætt um það hvaða sálarmein valdi því að kristni sumra skuli brjótast út í hatursáróðri en ekki kærleiksáróðri. Jesús frá Nasaret var jú einhver mesti áróðursmeistari kærleikans sem uppi hefur verið: "Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig.“ Bakþankar 18. febrúar 2012 06:00
Þrúgandi leiðindi Stundum finnst manni eins og í fréttum komi vart annað en afturgöngur gamalla frétta og umræðu. Nú síðast í vikulokin gerðist það með dómi Hæstaréttar þar sem afturvirkir endurreiknaðir vextir á gjaldeyrislán voru sagðir ólöglegir. Fastir pennar 18. febrúar 2012 06:00
Að snúast um vegprestinn Á fjórða ári eftir hrun krónunnar og fall bankanna stendur þjóðin enn á vegamótum í þeim skilningi að hún hefur ekki valið ákveðna leið til þess að feta sig eftir við endurreisnina. Vegpresturinn stendur á sínum stað. Ætli menn að komast úr sporunum þarf að velja eina af leiðunum frá honum. Fastir pennar 18. febrúar 2012 06:00
Vinnufélagar dómara Hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, og Viðar Már Matthíasson lýstu sig vanhæfa til þess að dæma í máli Sigurðar Hreins Sigurðarsonar og Mariu Elviru Mendez Pinedo gegn Frjálsa fjárfestingabankanum í 15. febrúar sl. Fastir pennar 17. febrúar 2012 12:01
G-bletturinn er flókinn Ég er karlmaður kominn yfir fertugt og hef verið giftur í langan tíma. Nýlega þegar við vorum búin að vera að dágóða stund saman uppi í rúmi þá skyndilega var eins og eitthvað gerðist hjá henni og það sprautaðist út úr píkunni talsvert mikið af vökva og af talsvert miklum krafti. Þetta var tær, lyktarlaus vökvi og hún virtist verða jafnhissa á þessu og ég og sagði að þetta hefði aldrei gerst áður. Þetta endurtók sig síðan þrisvar sinnum í viðbót á næsta klukkutímanum. Fastir pennar 17. febrúar 2012 11:00
Milli fótleggjanna Árið er 1859. Breskt samfélag iðar af lífi og um margt er skrafað. Viktoría drottning og Albert prins hafa eignast sitt fyrsta barnabarn; Uppruni tegundanna eftir Charles Darwin lítur dagsins ljós; Big Ben er tekinn í gagnið; ein spurning brennur á allra vörum: Hver er George Eliot? Fyrsta bók þessa óþekkta höfundar sem skrifar undir skáldanafni fer sem eldur um sinu. Uppi eru margar kenningar, sú algengasta að höfundurinn sé sveitaprestur. Ráðgátan virðist leyst þegar karlmaður stígur fram og kveðst vera George. Sá reynist loddari. Loks gefur hinn rétti höfundur sig fram. Nafn eins ástsælasta rithöfundar Viktoríutímabilsins reynist vera Mary Anne Evans. Bakþankar 17. febrúar 2012 06:00
Tjáningarfrelsi og ábyrgð kennara Frelsi til skoðana og frelsi til að tjá þær teljast til grundvallarmannréttinda. Engu að síður búa milljónir og tugmilljónir manna við mikil höft á frelsi til skoðanatjáningar. Í fjölmörgum þjóðlöndum varðar við lög að tjá sig um ríkjandi stjórnvöld og/eða trúarbrögð og viðurlögin geta jafnvel verið dauðarefsing. Fastir pennar 17. febrúar 2012 06:00
Meiri fækkun ríkisstarfsmanna Seðlabankinn sendi ríkisstjórninni og Alþingi kurteislega ábendingu í riti sínu Peningamálum, sem út kom í síðustu viku. Þar segir að fjárlög þessa árs séu breytt frá upphaflegu frumvarpi, sem lá til grundvallar hagspá Seðlabankans í nóvember. Hallinn á fjárlögunum sé þannig þremur milljörðum meiri en gert var ráð fyrir. "Mest munar um að ekki var gengið jafn langt í aðhaldi launakostnaðar eins og gert hafði verið ráð fyrir í frumvarpinu eða sem nemur um 2,1 ma.kr. Gert er ráð fyrir að launakostnaður í ár verði 2,5% meiri en í fyrra. Í ljósi umsaminna launahækkana opinberra starfsmanna er ljóst að enn þarf að skera niður vinnumagn eigi þessi forsenda að halda,“ segir Seðlabankinn. Fastir pennar 16. febrúar 2012 06:00
Opið bréf til Bjarna Benediktssonar: Bruninn á Stuðlum: Hver ber ábyrgð? Anna María Ingveldur Larsen Skoðun
Geðdeild Akureyrar aðeins með 10 pláss á legudeild fyrir sjúklinga með alvarlegan geðrænan vanda Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun