Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Arnar Daði Arnarsson fékk heldur kaldar jólakveðjur frá handknattleiksdeild Stjörnunnar í hádeginu í dag þegar honum var tilkynnt að hann yrði að stíga til hliðar sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Hann er þó áfram þjálfari meistaraflokks kvenna og yngri flokka en ætlar að skoða sín mál yfir jólin Handbolti 23.12.2025 21:25
KA-menn fengu góða jólagjöf Gærkvöldið var svo sannarlega gott fyrir KA-menn. Ekki nóg með að þeir hafi unnið Framara í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins í handbolta karla því eftir leikinn var greint frá því að markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson hefði samið við félagið. Handbolti 20.12.2025 09:16
Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít Íslandsmeistarar Fram unnu dramatískan tveggja marka sigur er liðið heimsótti topplið Hauka í síðustu umferð Olís-deildar karla fyrir jól í kvöld, 25-27. Handbolti 15.12.2025 18:48
Framarar hefndu loks með stórsigri Eftir eins marks tap á Selfossi þegar liðin mættust í september þá unnu meistarar Fram stórsigur á Selfyssingum í Úlfarsárdal í kvöld, 38-29, í Olís-deild karla í handbolta. Handbolti 11. desember 2025 20:33
KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik vann Afturelding öruggan sex marka sigur gegn KA á Akureyri í kvöld, 28-22, í Olís-deild karla í handbolta. Handbolti 11. desember 2025 20:30
Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur HK vann dramatískan eins marks sigur á Stjörnunni í Olís deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 24-23. Handbolti 10. desember 2025 21:17
Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar Haukar unnu átta marka sigur á ÍR í Olís deild karla í handbolta í kvöld, 39-31, og jafna þar með Val að stigum á toppi deildarinnar. Handbolti 10. desember 2025 20:49
Eiður í stuði í stórsigri Fram vann öruggan sigur á Þór á Akureyri í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Handbolti 6. desember 2025 18:22
Valsmenn með flotta endurkomu í Kaplakrika Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir sóttu tvö stig til FH-inga í Hafnarfirði. Handbolti 5. desember 2025 21:10
Eyjamenn með tvo sigra í röð í fyrsta sinn síðan í október ÍBV sótti tvö stig í Garðabæinn í Olís deild karla í handbolta í kvöld. ÍBV vann þá sjö marka sigur á Stjörnunni, 29-22. Handbolti 5. desember 2025 18:26
Sáttur eftir góðan sigur: „Fannst allir leggja í púkkið“ Hinn bráðefnilegi Freyr Aronsson lék vel þegar Haukar sigruðu KA, 42-38, í Olís-deild karla í kvöld. Hann var sáttur með sóknarframmistöðu Hauka í leiknum. Handbolti 3. desember 2025 23:16
„Vorum orðnir súrir á löppunum“ Þrátt fyrir tapið fyrir Haukum var Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, lengst af sáttur með leik sinna manna. Handbolti 3. desember 2025 23:11
Uppgjörið: Haukar - KA 42-38 | Markaflóð á Ásvöllum Haukar unnu KA í miklum markaleik á Ásvöllum í Olís-deild karla í kvöld, 42-38. Haukar eru með eins stigs forskot á toppi deildarinnar en KA-menn í 4. sætinu. Handbolti 3. desember 2025 22:50
Hannes tryggði sigurinn með tíunda markinu sínu Hannes Höskuldsson var hetja Selfyssinga í botnslagnum í Olís-deild karla í handbolta á Selfossi í kvöld. Afturelding komst á toppinn en mögulega bara tímabundið. Handbolti 3. desember 2025 20:33
Felldi félaga sinn úr íslenska U19-landsliðinu Kallað hefur verið eftir því að Andri Erlingsson, leikmaður ÍBV, fái eitthvað meira en tveggja mínútna brottvísunina sem hann fékk fyrir að fella Ágúst Guðmundsson, leikmann HK, í leik í Olís-deildinni í handbolta um helgina. Handbolti 1. desember 2025 09:04
ÍR vann botnslaginn og sinn fyrsta sigur ÍR-ingar eru ekki lengur sigurlausir í Olís-deild karla eftir 34-30 sigur á Þór í kvöld. Breiðhyltingar verma þó áfram botnsætið. Handbolti 29. nóvember 2025 20:04
„Við vorum búnir að grafa okkur í djúpa holu“ Einar Jónsson, þjálfari Fram, var upplitsdjarfur þrátt fyrir tveggja marka tap gegn FH í Olísdeild karla í kvöld. Framarar voru sjö mörkum undir þegar rúmar sex mínútur voru eftir en áttu þá góðan kafla og minnkuðu muninn í tvö mörk. Handbolti 28. nóvember 2025 21:33
Uppgjörið: Fram-FH 28-30 | Hafnfirðingar unnu meistarana FH lagði Fram að velli í 12. umferð Olísdeildar karla í kvöld. Leikurinn endaði 30-28 og er þetta þriðji sigur FH-inga í röð í deildinni. Handbolti 28. nóvember 2025 20:27
„Þetta lítur verr út en þetta var“ Gunnar Magnússon þjálfari Hauka var gríðarlega vonsvikinn með leik sinna manna í kvöld þegar hann mætti á sinn gamla heimavöll í Mosfellsbæ þar sem Afturelding vann afar sannfærandi níu marka sigur í kvöld. Handbolti 27. nóvember 2025 22:09
Umfjöllun: Afturelding-Haukar 31-22 | Mosfellingar léku sér að toppliðinu Afturelding sýndi styrk sinn í Olís deild karla í handbolta í kvöld með sannfærandi níu marka sigri á toppliði Hauka. Handbolti 27. nóvember 2025 21:00
KA-menn búnir að byggja vígi í KA-heimilinu KA fylgdi eftir sigri á nágrönnum sínum í Þór með fimm marka sigri á Selfossi í KA-húsinu í Olís deild karla í handbolta í kvöld. Handbolti 27. nóvember 2025 20:34
Valsmenn með fimmta sigurleikinn í röð Valsmenn komust upp að hlið Hauka í toppsæti Olís-deildar karla í handbolta eftir sjö marka sigur á Stjörnunni í kvöld. Handbolti 27. nóvember 2025 19:59
Fæstir mæta á heimaleiki Íslandsmeistaranna en flestir í KA-húsið KA-menn fönguðu flottum sigri á nágrönnum sínum í Þór í Olís-deild karla í handbolta í vikunni og þeir gátu einnig montað sig af öðru. Handbolti 23. nóvember 2025 12:30
Allt í miklum blóma á Hlíðarenda síðan Arnór Snær kom heim Valsmenn eru á svaka skriði í Olís-deild karla eftir að þeir fengu Arnór Snæ Óskarsson heim frá Noregi. Valsliðið vann átta marka stórsigur á Eyjumönnum á Hlíðarenda í dag, 34-26. Handbolti 22. nóvember 2025 18:00