Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Kennari sem hefur mikla reynslu af börnum með hegðunarvanda segir skort á fjármagni og fagfólki ástæðuna fyrir því að ekki sé unnið rétt með hópinn. Stokka þurfi kerfinu upp. Tvö sveitarfélög á öllu landinu bjóði upp á úrræði fyrir börn sem glími við slíkar áskoranir en biðlistinn sé langur. Kostnaður samfélagsins verði miklu meiri vegna brotinna einstaklingar útskrifast úr grunnskóla. 25.2.2025 15:56
Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Einfalda þarf regluverk til að geta breytt atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og setja kvaðir á nýtingu íbúðarhúsnæðis til skammtímaleigu. Auka þarf framboð íbúða verulega og endurskoða byggingarreglugerð. 25.2.2025 10:01
Fundað á ný í kennaradeilu Samninganefndir í kjaradeilu kennara hafa verið boðaðar til fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. Ekki hefur verið fundað í deilunni síðan sveitarfélögin höfnuðu innanhússtillögu sáttasemjara á föstudag og ríkið tók ekki afstöðu til hennar. 25.2.2025 09:44
Kennarar mótmæla við bæjarráðsfund Kennarar í Garðabæ fjölmenntu í Sveinatungu á Garðatorgi í morgun til að minna á kjarabaráttu sína. Fundur bæjarráðs hófst klukkan átta og liggja kennarar á gluggunum með fána á lofti meðan fundurinn fer fram. Boðað hefur verið til fundar í deilunni hjá sáttasemjara klukkan 15 í dag. 25.2.2025 09:05
Guðrún nýtur meiri stuðnings hjá almenningi Fleiri landsmenn vilja að Guðrún Hafsteinsdóttir verði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir samkvæmt könnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið. Mikill munur er á fylgi þeirra milli aldursflokka. 24.2.2025 17:27
Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem þess er krafist að Rússar dragi herlið sitt þegar í stað frá Úkraínu. Aðeins 93 af 193 löndum greiddu atkvæði með tillögunni. AFP greinir frá. 24.2.2025 17:12
Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Bandaríska söngkonan Roberta Flack er látin, 88 ára gömul. Hún er meðal annars þekkt fyrir smellinn „Killing Me Softly with His Song“. 24.2.2025 15:53
Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lagið Róa bar sigur úr býtum á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2025 sem fram fór í beinni útsendingu á RÚV síðasta laugardagskvöld. Lagið var hlutskarpast í símakosningu almennings bæði í undankeppninni og lokakeppninni. Þá voru erlendu dómararnir líka ánægðastir með lagið. 24.2.2025 15:33
Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Skurðlæknir á eftirlaunum sem sakaður er um að hafa nauðgað eða misnotað 299 fyrrverandi sjúklinga sem í flestum tilfellum eru börn játar flest brot sín. Málið kom til kasta dómstóla í Frakklandi í dag. AFP greinir frá. 24.2.2025 15:22
Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Einar Bárðarson plokkari er hugsi yfir umræðum á Alþingi þegar húsnæðisvandi og kennaraverkfall liggi þungt á þjóðinni. Rifrildi þingflokka um herbergi og margra klukkutíma umræður um flöskutappa veiti ekki á gott. 24.2.2025 13:01