Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Rúta ME travel sem sat pikkföst á túninu við Höfða í Reykjavík komst í ógöngur fyrr í dag. Þá var henni ekið á steyptan klump við Austurvöll en bannað er að aka rútum á því svæði í miðbæ Reykjavíkur. 20.2.2025 14:41
Stórskemmdi grasflötina við Höfða Rútu á vegum ME travel var ekið inn á grasið við Höfða í Borgartúni á öðrum tímanum í dag og er þar pikkföst. Ljót för eru í blautu grasinu eftir rútuna en eigandi fyrirtækisins heitir því að bæta tjónið. Kínverskir ferðamenn voru um borð í rútunni og bíða nú eftir að rútan verði losuð. 20.2.2025 13:19
Bein útsending: Tökum samtalið - Verndandi þættir í lífi barna og ungmenna Mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga blása til fræðslufundar um verndandi þætti í lífi barna og ungmenna undir yfirskriftinni Tökum samtalið. 20.2.2025 12:51
Uppsagnarákvæði stendur í fólki Kennarar og sveitarfélög eiga enn í rökræðum varðandi launalið kjarasamninga og sömuleiðis uppsagnarákvæði sem sveitarfélögin vilja ekki sjá inni í kjarasamningum. Eining er um framtíðarsýn kennslustarfsins. 20.2.2025 12:32
Segja loforð svikin í Skálafelli Hópurinn Opnum Skálafell kallar eftir því að stjórnvöld og hluteigandi aðilar standi við gerða samninga um uppbyggingu í Skálafelli. Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað í allan vetur, annað árið í röð. Fulltrúar hópsins óttast að stjórnvöld séu að reyna hlaupa undan gerðum samningum. 20.2.2025 11:51
Rófustappan olli niðurgangi þorrablótsgesta Rófustappa á þorrablóti á Brúarási í Jökulsárhlíð norður af Egilsstöðum olli því að fleiri tugir gesta sýktust og fengu snarpan niðurgang. Ljóst er að eitthvað fór úrskeiðis við meðferð stöppunnar en ekki ljóst hvað. 19.2.2025 14:53
Hefur áhyggjur af Brynjari í sæti dómara Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi borgarstjóri, utanríkisráðherra og einn stofnenda Kvennalistans telur lítið hafa áunnist gegn kynbundnu ofbeldi á Íslandi. Taka þurfi til í réttarkerfinu. Hún segir setningu Brynjars Níelssonar í embætti héraðsdómara vera áhyggjuefni. 18.2.2025 11:28
Þingmanni blöskrar viðbragðsleysi skólastjóra Jón Pétur Zimsen, fyrrverandi skólastjóri og núverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega viðbrögð stjórnvalda og skólayfirvalda við alvarlegum agavanda í Breiðholtsskóla. Hann segir það óboðlegt að ofbeldismenningu hafi verið leyft að grassera þar árum saman án raunverulegra úrbóta. 18.2.2025 10:12
Norah Jones með sumartónleika í Hörpu Grammy-verðlaunahafinn margfaldi Norah Jones heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu fimmtudaginn 3. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónleik ehf. 17.2.2025 12:09
Landsmönnum líst sífellt betur á veggjöld Karlar eru frekar fylgjandi veggjöldum en konur og eldra fólk frekar en það yngra. Þetta eru niðurstöður nýrrar Maskínukönnunar sem bendir til nokkurs viðsnúnings hjá landsmönnum þegar kemur að veggjöldum. 17.2.2025 11:55
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent