Svona raðast árgangarnir í bólusetningu næstu þrjár vikur Dregið var í handahófskennda bólusetningarröð árganga 1976 til 2005 klukkan tíu í morgun. Vísir var í beinu streymi frá drættinum. 4.6.2021 09:31
Marek dæmdur til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg Marek Moszczynski, pólskur karlmaður á sjötugsaldri, var sýknaður af kröfu um refsingu fyrir að hafa orðið þremur að bana í bruna á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. Marek var metinn ósakhæfur og verður gert að sæta öryggisvistun. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu. 3.6.2021 15:04
Innipúkinn snýr aftur á nýjum stað Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Ingólfsstræti í Reykjavík um verslunarmannahelgina eftir að hafa verið blásin af í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Þá stóð til að Birgitta Haukdal og Moses Hightower kæmu fram saman. Ári síðar verður sameiningin að veruleika. 3.6.2021 14:18
Mikill munur á verði á sumarnámskeiðum hjá íþróttafélögum Heilmikill munur er á verði á þeim námskeiðum sem standa grunnskólabörnum til boða yfir sumartímann samkvæmt úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands. Tímagjald fyrir íþrótta- og leikjanámskeið á Akureyri er 133 krónur á meðan gjaldið er þrisvar til fjórum sinnum hærra í Kópavogi. 3.6.2021 13:53
Nýr goshver í Biskupstungum „Goshver opnaðist í bakgarðinum hér á Reykjavöllum í hádeginu. Án gríns, og gýs á 17 mínútna fresti.“ 3.6.2021 13:23
Dýrið fer á Cannes Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson hefur verið valin til þátttöku í Un Certain Regard keppni, sem er hluti af aðaldagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, sem fer fram dagana 6. - 17. júlí. Frá þessu er greint á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. 3.6.2021 11:13
Nadine fer til Play Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar. 3.6.2021 10:02
Drífa yfirheyrir Ingu Sæland Alþýðusamband Íslands stendur í aðdraganda Alþingiskosninganna í haust fyrir röð samtala við forystufólk flokkanna. 2.6.2021 09:31
Karlar fæddir 1987 og konur fæddar 1996 fá skyndiboð í bólusetningu Ákveðið hefur verið að draga aftur árganga sem fá skyndiboðun í bólusetningu í Laugardalshöll í dag. 1.6.2021 15:46
Stofnandi World Class skóla færir sig um set Magnea Björg Jónsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastýra Key of Marketing. Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2018, hjálpar fyrirtækjum að fanga viðskiptavini með sjálfvirkni í markaðssetningu og efnissköpun. 1.6.2021 15:44