Hlaut meðaleinkunn sem aldrei verður toppuð Sögulegt met var slegið á útskriftarathöfn Menntaskólans í Kópavogi í dag þegar Orri Þór Eggertsson var útskrifaður með hreina tíu í meðaleinkunn. Ljóst er að met Orra Þórs mun standa um ókomna tíð. 26.5.2023 18:55
Óþekktur maður kramdi bíl með gröfu Á níunda tímanum í morgun barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk á Kjalarnesi. Þar hafði bifreið verið kramin með gröfu. Lögregla veit ekki hver framdi skemmdarverkið bíræfna. 26.5.2023 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Álag á starfsfólk og rúmanýting á legudeildum er að skapa neyðarástand í heilbrigðiskerfinu segir formaður Læknafélags Reykjavíkur. Læknafélag Íslands biðlar til stjórnvalda um að grípa inn í. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 26.5.2023 18:01
Kennari mátti ekki löðrunga barn eftir allt saman Dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra um skaðabætur til handa konu, sem var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir að löðrunga þrettán ára stúlku, hefur verið snúið við í Landsrétti. Landsréttur telur háttsemi konunnar hafa falið í sér gróft brot í starfi sem heimilaði skólanum að segja henni fyrirvaralaust upp störfum. 26.5.2023 17:54
Farþegi á hælum hrundi niður stiga og rotaðist Í janúar síðastliðnum féll farþegi niður stiga um borð í skemmtiskipinu Amelíu Rose og missti meðvitund eftir höfuðhögg. Meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa er að farþeginn hafi verið í háhæluðum skóm og snúið baki í stigann þegar hann gekk niður hann. 16.5.2023 08:00
Fallist á málatilbúnað Dómarafélagsins í prófmáli Í gær féll dómur í máli héraðsdómara gegn íslenska ríkinu vegna breytinga sem gerðar voru á launafyrirkomulagi dómara sumarið 2022 samhliða því að dómarar voru krafðir um endurgreiðslu meintra ofgreiddra launa. Formaður Dómarafélags Íslands segir málið prófmál og að settir dómarar í því hafi tekið undir forsendur málatilbúnaðar Dómarafélagsins. 16.5.2023 07:00
Þrír látnir í enn einni skotárásinni Þrír eru látnir og þónokkrir særðir, þar á meðal tveir laganna verðir, eftir skotárás í Nýju-Mexikó í Bandaríkjunum í dag. Það sem af er ári hafa 224 fjöldaskotárásir verið framdar í Bandaríkjunum. 15.5.2023 22:45
Segir starfmenn hafa hindrað starf fjölmiðla fyrir misskilning Dómsmálaráðherra segir að líklegasta skýringin á því að starfsmenn Isavia á Keflavíkurflugvelli trufluðu starf fjölmiðla, þegar flóttafólk var flutt úr landi af lögreglu í nóvember síðastliðnum, sé að þeir hafi misskilið beiðni stoðdeildar ríkislögreglustjóra. 15.5.2023 22:00
Landsvirkjun greiðir 19,5 milljarða í arð Hagnaður Landsvirkjunar fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 14,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi, en var 10,7 milljarðar á sama tímabili í fyrra og hækkar því um 40,6 prósent milli ára. Aðalfundur félagsins samþykkti að greiða eiganda sínum íslenska ríkinu um 19,5 milljarða króna í arð. 15.5.2023 21:34
Ríkið mátti ekki lækka laun dómara Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari vann í dag mál á hendur íslenska ríkinu, sem hún höfðaði eftir að henni var tilkynnt um að hún hefði fengið ofgreidd laun. 260 af æðstu embættismönnum þjóðarinnar fengu sams konar tilkynningu. 15.5.2023 19:46