Öllu starfsfólki Niceair sagt upp Öllum sextán starfsmönnum Niceair hefur verið sagt upp störfum og félagið mun ekki hefja flugið aftur í sumar. 28.4.2023 19:17
Þrír hermenn létust þegar þyrlur skullu saman Þrír bandarískir hermenn létust í Alaska í Bandaríkjunum í dag þegar tvær herþyrlur skullu saman og hröpuðu til jarðar. Tveir hermenn voru í hvorri þyrlunni. Einn komst lífs af úr slysinu og er á sjúkrahúsi. 28.4.2023 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórnin hefur samþykkt að verja eitt hundrað og sjötíu milljónum króna til að sporna gegn ópíóðafaraldrinum. Samstaða ríkir hins vegar ekki um afglæpavæðingu neysluskammta. Fjallað verður nánar um málið og rætt við yfirlækni Vogs um mögulegt fyrirkomulag boðaðrar viðbragðsþjónustu vegna vímuefnaneyslu. 28.4.2023 18:00
Sjö bíla árekstur í Ártúnsbrekku Laust eftir klukkan 17 í dag varð árekstur í Ártúnsbrekku við eldsneytisstöð N1 í austurátt. Alls voru sjö bílar sem lentu saman. Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka. 28.4.2023 18:00
Krefjast gæsluvarðhalds yfir mönnunum á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi hefur krafist þess að tveir karlmenn verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir andlát konu á Selfossi. Grunur er um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti. 28.4.2023 15:57
Konan sem lögregla lýsti eftir fannst heil á húfi Uppfært 9:00: Konan sem lögregla lýst eftir fundin heil á húfi. 17.4.2023 22:42
„Aðeins skrímsli gæti gert barni þetta“ Danskur karlmaður var í dag ákærður fyrir að nema 13 ára gamla stúlku á brott. Hann er grunaður um að hafa nauðgað stelpunni ítrekað meðan hann frelsissvipti hana í rúman sólarhring. Saksóknari útilokar ekki að hann hafi haft vitorðsmenn. Móðir Filippu segir ómögulegt að setja sig í spor hennar og að fjölskyldan geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að styðja hana. 17.4.2023 20:30
Enginn kannast við mann sem framdi vopnað rán í Innri-Njarðvík Laust fyrir klukkan 15 í dag ruddist maður með hettu, sólgleraugu, grímu fyrir vitum og vopnaður hnífi inn í Stapagrill í Innri-Njarðvík og ógnaði starfsfólki. Hann komst á brott með reiðufé úr afgreiðslukassa sjoppunnar. 17.4.2023 18:53
Bónusgrísinn reiður kortafyrirtækjum „Kortafyrirtækin klúðruðu uppfærslu á sínum kerfum og því hafa margir lent í röngum færslum,“ segir í færslu á Facebooksíðu verslunarkeðjunnar Bónus. Með færslunni fylgir mynd af Bónusgrísnum fræga, sem er heldur reiður á svip. 17.4.2023 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landlæknir segir að mál geðlæknisins, sem sviptur var ávísanaleyfi á dögunum, sé fordæmalaust vegna magns ópíóíðalyfja sem skrifað var upp á. Viðhaldsmeðferðir eigi ekki heima hjá einstökum læknum. Hún kallar eftir heildstæðri stefnu stjórnvalda í vímuefnamálum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.4.2023 18:00