„Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segir fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða. 13.7.2026 13:11
Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Brotist var inn í Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu við Hátún í Reykjavík í gær. Smámunum var stolið, þar á meðal gítar. 13.7.2026 10:10
Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. 13.7.2026 09:47
Miklir skógareldar nærri París Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. 13.7.2026 07:29
Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Búast má við rigningu á köflum í dag, einkum vestantil á landinu. Hiti gæti náð allt að 22 stigum og enn verði hlýjast á Austfjörðum. 13.7.2026 06:41
Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um yfirstaðið innbrot í nótt, tvö í heimahús og eitt í kirkju. Einn var handtekinn í þágu rannsóknar á öðru innbrotinu í heimahús en málin séu öll í rannsókn. 13.7.2026 06:25
„Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Barna- og menntamálaráðherra segir stöðuna í menntakerfinu óásættanlega en endurbætur þess séu gríðarlega umfangsmikið verkefni. Mikil innviðaskuld hafi safnast upp og menntakerfið hafi verið látið sitja á hakanum. 12.7.2026 16:01
Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Hnúfubakur sást bregða á leik í Hólmavík á föstudaginn en Júlíus Garðar Þorvaldsson, íbúi á Hólmavík, náði myndbandi af sjónarspilinu. 12.7.2026 15:48
Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Lögreglunni bárust tilkynningar um þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæði Kótilettunnar sem haldin var á Selfossi um helgina. 12.7.2026 10:31
Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Mikill erill var á seinna kvöldi Kótilettunnar sem haldin var á Selfossi í gær en þrír voru vistaðir í fangageymslu í tenglsum við hátíðarhöldin að sögn lögreglu. Kvöldið hafi þó gengið þokkalega vel miðað við mannmergð. 12.7.2026 09:52