Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Icelandair hefur flug til Qaqortoq

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Körfuboltakempa nýr úti­bús­stjóri á Króknum

Körfuboltakappinn Helgi F. Margeirsson hefur tekið við sem útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki. Helgi hefur starfað í útibúinu frá árinu 2009 en hann er mögulega þekktari fyrir langan og farsælan körfuboltaferil.

Mót­mæli við Austur­völl

Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag.

Mót­mæla fyrir­hugaðri brottfararstöð

Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 

„Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“

Rakaramenning á Íslandi hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum en sífellt fleiri karlmenn velja að leggja fagið fyrir sig. Í nýjasta þætti Ísland í dag ræðir Hödd Vilhjálmsdóttir við rakarana Guðfinn Sigurvinsson og Gunnar Malmquist Thorsson, en sá síðarnefndi segir meðal annars frá því hversu fallegt það sé að sjá unga menn blómstra eftir að hafa fundið sína hillu í lífinu.

Natasha S. hlýtur Maí­stjörnuna

Natasha S. hlýtur Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafns Íslands, fyrir bókina Mara kemur í heimsókn. Verðlaunin voru veitt í tíunda skiptið í dag við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni. 

Sóttu öku­mann sem slasaðist í mótorhjólaslysi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í gærkvöld, þriðjudag, til þess að sækja ökumann sem hafði lent í bifhjólaslysi nærri Höfn í Hornafirði. Þyrluáhöfnin flaug til móts við sjúkrabíl og sótti ökumanninn við Skaftafell í Öræfum á Suðausturlandi.

Faldi rúmar þrjá­tíu milljónir í peninga­skáp

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti eftir að lögregla fann töluvert magn fíkniefna í leit í bifreið hans og heimili í Hveragerði. 

Sjá meira