Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Framkvæmdastjóri sjóðsstýringarfyrirtækisins Stefnis, fagnar því að fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hafi ákveðið að herða lánþegaskilyrði vegna nýrra sameignasamninga á fasteignamarkaði. Um áttatíu manns hafa sótt um slíka samninga. Stefnir rekur sex sjóði fyrir byggingafyrirtæki sem bjóða upp á formið. Sameignarformið felur í sér að kaupandi semur í raun við Stefni, byggingafyrirtæki og nýja fjárfestingarfyrirtækið Aparta. 5.12.2025 08:02
Yfir 120 stórfelld fíkniefnamál hjá tollinum Tollgæslan hefur kært hátt í þrjú hundruð mál vegna innflutnings á fíkniefnum- og lyfjum á þessu ári. Tæplega helmingur málanna flokkast sem stórfelld brot. Hvert Íslandsmetið á fætur öðru hefur fallið í ár þegar kemur að haldlagningu á efnum á landamærum. 4.12.2025 19:00
Földu stórfellt magn fíkniefna í alls konar leynihólfum Fjórir erlendir ríkisborgarar hafa verið handteknir vegna stórfellds fíkniefnainnflutnings í tveimur aðskildum málum í tengslum við komu Norrænu til Seyðisfjarðar. Það tók tollgæslu marga klukkutíma að finna efnin sem voru kyrfilega falin í bílum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að samfélagið verði að staldra við og spyrja sig af hverju eftirspurnin eftir fíkniefnum sé svona mikil. 3.12.2025 19:10
„Mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er“ Fjármálastofnanir þurfa nú við útreikning á greiðslubyrði að líta til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við kaup á íbúðarhúsnæði, jafnvel þó þeim sé frestað. Fjármálastöðuleikanefnd er með þessu að bregðast við útspili margra verktakafyrirtækja sem bjóða nú upp á nýja fjármögnunarleið. Hún er áhættusamari en almenn íbúðakaup að mati Seðlabankastjóra. 3.12.2025 13:37
Stórfelld fjölgun fíkniefnamála tengd Norrænu Stórfelld fíkniefnamál í tengslum við komu Norrænu á Seyðisfirði eru orðin jafn mörg og samanlagður málafjöldi síðustu fimm árin þar á undan. Yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir öll málin talin tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Þróunin sé áhyggjuefni. 25.11.2025 20:02
Stórhættuleg eiturlyf flæða til landsins í sögulegu magni Aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið magn örvandi fíkniefna á Keflavíkurflugvelli og í ár. Þá hafa stórfelld eiturlyfjamál á flugvellinum aldrei verið fleiri. Neysla á nýju afar hættulegu efni virðist vera að færast í aukanna. Yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum segir þetta benda til gríðarlegs framboðs og eftirspurnar. 24.11.2025 19:06
Enn ein úttektin sýnir alvarlega stöðu fatlaðra: „Sláandi" Ríflega helmingur allra sveitarfélaga á landinu hefur enga stefnu í málefnum fatlaðs fólks samkvæmt nýrri úttekt. Þetta er fjórða opinbera rannsóknin á þessu ári sem sýnir alvarlega stöðu í málaflokknum. Formaður Öryrkjabandalagsins segir brýnt að yfirvöld bregðist við sláandi stöðu fatlaðra. 23.11.2025 19:02
Óásættanlegt að ríflega helmingur sveitarfélaga falli í málefnum fatlaðra Formaður Þroskahjálpar segir óásættanlegt að meira en helmingur sveitarfélaga sé ekki með stefnu í málefnum fatlaðs fólks, fimmtán árum eftir að þau tóku við málaflokknum. Stór hluti sveitarfélaga fari því ekki að lögum. Nauðsynlegt sé að breyta viðhorfi samfélagsins til fatlaðra. 23.11.2025 14:02
Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það vonbrigði að bankar skáki í skjóli dómsins og hækki vexti sína og þrengi lánaskilmála. Hann segir ekkert í dómi hæstaréttar sem segi til um að bankarnir þurfi þess. 19.11.2025 21:01
Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Lánskjör heimilanna hafa versnað verulega vegna vaxtamálsins svokallaða að sögn Seðlabankastjóra. Peningastefnunefnd hafi því ákveðið að lækka stýrivexti þrátt fyrir þráláta verðbólgu. Áhrif áfalla sem dunið hafa á hagkerfinu undanfarið eigi hins vegar eftir að koma í ljós. Hagvaxtarspá fyrir næsta ár hafi versnað verulega og sé svipuð og í Covid. 19.11.2025 20:02